Bæjarráð Grindavíkur - 1566. fundur
- 08.12.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1566
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem síðasta mál. 2003020 Kórónuveira COVID-19
Samþykkt samhljóða.
1. Dagdvöl aldraðra - Aðstaða
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umræðu í vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.2. Dagdvöl aldraðra - Rými
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð leggur til að viðbótar dagdvalarrými sem skv. fjármálaáætlun ríkisstjórnar verður úthlutað á næsta ári, verði sótt af fullri alvöru þar sem þörfin er orðin mjög brýn. Mikil fjölgun hefur orðið á öldruðum í dagdvöl í Víðihlíð en samþykkt rými eru einungis 5 og hafa verið það frá árinu 2004. Undanfarin 10 ár hefur Grindavíkurbær verið að þjónusta langt umfram þau rými. Nú er verið er að þjónusta 13 aðila, þar af eru nokkrir aðilar með miklar þjónustuþarfir.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að fylgja málinu eftir gagnvart ráðuneytinu.3. Tilnefning í samstarfshóp - Samfélagsrannsóknir
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað frá samstarfshópnum.4. Gerðavellir 17 Húsasótt
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn í gegnum fjarfundabúnað.
Minnisblað frá Eflu ehf. varðandi skoðun, rakamælingar og sýnatöku við Gerðavelli 17 lagt fram. Verið er að vinna kostnaðaráætlun vegna úrbóta.5. Breyting á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar frá 2016
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Skipulagsnefnd og bæjarstjórn samþykktu deiliskipulagsbreytingu á árinu 2016 sem verktaki sem var með lóðir við Norðurhóp 1-11 óskað eftir. Kostnaður vegna innviðabreytinga hefur fallið á sveitarfélagið sem eðlilegt væri að verktaki myndi greiða. Bréf frá lögfræðingi verktaka lagt fram eftir að reikningur barst þeim frá Grindavíkurbæ.6. Suðurhóp 2 (Áfangi 2 við Hópsskóla) - umsókn um byggingarleyfi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Framvinduskýrsla verkeftirlits nr. 2 lögð fram ásamt verkfundargerðum.7. Kaup á hlut í skólahúsnæði Keilis
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
8. Stafrænt teymi sveitarfélaga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Teyminu er ætlað að styðja við stefnumótun og forgangsröðun um stafræna framþróun sveitarfélaga og að til verði samstarf sveitarfélaga á landsvísu um þau mál.
Kostnaður vegna verkefnisins er áætlaður 45 m.kr. og þar af yrði hlutur Grindavíkurbæjar 675 þús.kr.
Bæjarráð samþykkir verkefnið samhljóða.9. Kjarasamningar - Stytting vinnuviku
Lagt fram fyrirkomulag á styttingu vinnuviku hjá þjónustumiðstöð og bæjarskrifstofum.
bæjarráð samþykkir fyrirkomulagið.10. Sveitarfélagið Skagafjörður - Áskorun á Reykjavíkurborg
Bæjarráð tekur undir bókun sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. nóvember 2020.
11. Heilbrigðismál - trúnaðarmál
Lagt fram.
12. Kórónuveiran COVID-19
Í ljósi þeirra sóttvarnarfyrirmæla sem taka gildi 10. desember lýsir bæjarráð Grindavíkur áhyggjum sínum af þeim ungmennum sem mega ekki æfa sínar íþróttir vegna þess að þeir flokkast ekki undir afreksíþróttamenn eða stunda keppni í efstu deild.