Bæjarráð Grindavíkur - 1580. fundur
- 04.05.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1580
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem 10. mál: 2104025 - Skólastjóri Grunnskóla - Ráðning.
Samþykkt samhljóða.
1. Starfshópur um vernd mikilvægra innviða
Björn Oddsson jarðeðlisfræðingur PhD kom á fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum Teams og fór hann yfir stöðu mála.
Lagt fram minnisblað unnið af Verkís, Eflu, HÍ og VÍ, dags. 12.04.2021, um prófanir á hraunrennslisvörnum.
Bókun
Fyrir liggja útfærslur á prófunum á mögulegum hraunrennslisvörnum í Meradölum út frá núverandi gosi í Geldingadölum. Tilgangur þessara prófana er að afla reynslu og þekkingar á uppbyggingu varnargarða sem gæti þurft að byggja síðar til að verja mikilvæga innviði eða íbúðabyggð á Reykjanesskaga. Bæjarráð Grindavíkur leggur mikla áherslu á að þær aðstæður sem nú eru til staðar í Meradölum verði tafarlaust nýttar til að framkvæma prófanir á hraunrennslisvörnum að veittum tilskyldum leyfum til framkvæmdanna.2. Starfshópur um uppbyggingu eldgosasvæðisins í Geldingadölum
Lagt fram minnisblað starfshóps um uppbyggingu eldgosasvæðsisins í Geldingadölum, dags. 30. apríl 2021.
3. Víkurbraut 62, 3 hæð - Starfsaðstæður
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðsusviðs, umsjónarmaður fasteigna og ráðgjafi Grindavíkurbæjar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað og önnur gögn eftir skoðun EFLU á 3. hæð að Víkurbraut 62 þann 17.03.2021 lögð fram.4. Körfur í íþróttahúsi - nýr hæðarstillingarbúnaður og þjónusta
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ráðast þarf í lagfæringar á körfum í nýjum íþróttasal og breytingar á hæðarstillingarbúnaði. Beiðnin kemur frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumanni íþróttamannvirkja. Tilboð söluaðila á þessu verki er 1.771.718 kr. Óskað er eftir viðauka vegna þessa.
Bæjarráð leggur til við bæjarráð að samþykkja viðauka að fjárhæð 1.772.000 kr. og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.5. Húsdýraáburður frá Staðarbúi
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja óskar eftir viðbrögðum frá Grindavíkurbæ við staðarvali varðandi meðhöndlun og dreifingu á hænsnaskít frá Staðarbúi.
Grindavíkurbær gerir ekki athugasemdir við staðarvalið.6. Ný brunavarnaáætlun fyrir slökkvilið Grindavíkur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Uppfærð brunavarnaráætlun slökkviliðs Grindavíkur lögð fram.7. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram fundargerð starfshóps um félagsaðstöðu eldri borgara í Grindavík, dags. 16.02.2021.8. Víkurhóp 57 - umsókn um byggingarleyfi
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tölvupóstur frá Bjargi-íbúðafélagi, dags. 30.04.2021, varðandi íbúðasamsetningu hússins lagður fram.9. Sérstuðningur í leikskóla - Beiðni um viðauka
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 4.500.000 kr. til að manna stuðning með langveiku barni í leikskóla.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.10. Skólastjóri grunnskóla - Ráðning
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram.12. Nafn á nýju hrauni og gígum við Fagradalsfjall
Lögð fram umsögn Örnefndanefndar á heiti á nýju hrauni og gígum í mótun við Fagradalsfjall.
Með vísan til laga nr. 22/2015 leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að nýtt hraun austan Fagradalsfjalls verði nefnt Fagradalshraun.13. Fjármál sveitarfélaga 2021 - beiðni ráðuneytis um gögn
Lagt fram bréf frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 13. apríl 2021 þar sem óskað er eftir fjárhagslegri stöðu sveitarfélaga vegna hinna óvæntu aðstæðna sem nú eru uppi.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að svara bréfinu.14. Styrkbeiðni - Blái herinn
Blái herinn óskar eftir stuðningi við að hreinsa strandlengju Reykjaness og önnur opin svæði.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.