Bæjarráð Grindavíkur - 1620. fundur
- 06.09.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1620
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gestastofa Reykjanes jarðvangs
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Einnig mætti á fundinn verkefnastjóri Reykjanes Geopark.
Hugmyndabók fyrir gestastofu Reykjanes Geopark í Kvikunni, dags. júlí 2022, er lögð fram.2. Samstarfssamningar á frístunda- og menningarsviði 2023
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Helga Dís vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Lögð fram drög að fjórum samstarfssamningum á frístunda- og menningarsviði fyrir árið 2023.3. Endurnýjun samnings vegna fjölþættrar heilsueflingar 65
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Janus heilsueflingu um heilsueflingu fyrir eldri aldurshópa sem tæki við þegar núgildandi samningur rennur út.4. Leigusamningur vegna heilsuræktarstöðvar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að leigusamningi Gym heilsu.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að ganga frá samningi við Gym heilsu í samræmi við framlögð drög.5. Framtíð sundlaugarsvæðis
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar fram tillögur frístunda- og menningarnefndar að framtíðarsýn fyrir sundlaugarsvæðið í Grindavík.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með hugmyndirnar og samþykkir að þær verði notaðar til grundvallar hönnun svæðisins.6. Opnunartími ungmennahúss
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ungmennahús ætlað 16-25 ára var starfandi sem tilraunaverkefni á fimmtudagskvöldum fyrri hluta árs. Samantekt forstöðumanns Þrumunnar um starfsemi ungmennahússins lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að verkefnið haldi áfram leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka á launaliði Þrumunnar að fjárhæð 403.000 sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.7. Árshátíð Grindavíkurbæjar 2022
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga um að bjóða starfsmönnum sem vinna að jafnaði a.m.k. 12 tíma á mánuði hjá Grindavíkurbæ gjaldfrjálst á árshátíð Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.9. Umdæmisráð barnaverndar - Samningur
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skapalón að samningi um umdæmisráð barnaverndar lagt fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að afla frekari gagna fyrir næsta fund bæjarráðs.10. Félagsþjónusta - Beiðni um viðauka
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram og reifuð viðaukabeiðni í félagsþjónustu og skólaþjónustu að fjárhæð.
Bæjarráð samþykkir 8 TV einingar á sérfræðinga í skólaþjónustu frá og með 1. sept. 2022 og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að koma með viðaukabeiðni á næsta fund bæjarráðs.11. Beiðni um kerrustyrk
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni tveggja dagmæðra, Helgu A Gestsdóttur og Aðalheiðar Birgisdóttur, um kerrustyrk að fjárhæð samtals 200.000 kr.
Bæjarráð hafnar erindinu.12. Beiðni um launalaust leyfi
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hrafnhildur Guðjónsdóttir óskar eftir launalausu leyfi frá Grunnskóla Grindavíkur skólaárið 2022-2023 vegna náms.
Bæjarráð samþykkir erindið.13. Samræmd móttaka flóttafólks
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram bókun fundar stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. ágúst 2022 um ramma að samkomulagi um samræmda móttöku flóttafólks.14. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Fyrstu drög að staðgreiðsluáætlun ársins 2023 lögð fram.
15. Tillögur um nýtingu vindorku
Skipaður hefur verið starfshópur til að skoða og gera tillögur til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um nýtingu vindorku. Sveitarfélögunum er boðið að senda sjónarmið sín varðandi málaflokkinn til starfshópsins.
16. Fundargerðir og gögn fjallskilanefndar
Fundargerð fjallskilanefndar, dags. 25. ágúst 2022, er lögð fram.
Réttað verður í Þórkötlustaðarétt sunnudaginn 18. september kl. 14:00.17. Tækifærisleyfi - Knattspyrnudeild Grindavíkur
Lögð fram umsagnarbeiðni frá sýslumanninum á Suðurnesjum vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi vegna lokahófs Knattspyrnudeildar Grindavíkur í íþróttamiðstöðinni í Grindavík 17. september 2022.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.