Bæjarráð Grindavíkur - 1602. fundur
- 01.02.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1602
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
2. Málsverðir í Grunnskóla Grindavíkur
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir fundi með fulltrúum Skólamatar ehf.
3. Leikskólagjöld vegna nemenda í sóttkví eða einangrun
Bæjarráð frestar málinu og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að afla frekari gagna.
4. Tillaga að svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs
Í samræmi við ákvæði laga um meðhöndlun úrgangs er tillagan send til allra þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að svæðisáætluninni til formlegrar staðfestingar.
Bæjarráð vísar tillögunni til samþykktar í bæjarstjórn.5. Breyting á reglugerð nr. 1212 frá 2005 - Frestun á gildistöku reglug nr. 230-2021
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að nýta heimild til frestunar sbr. reglugerð 14/2022.
6. Lífeyrisskuldbinding 31.12.2021
Verulegar hækkanir verða á lífeyrisskuldbindingu vegna hækkunar á lífslíkum. Því til viðbótar kemur 150 milljón króna hækkun vegna útreiknings á nýju skiptihlutfalli.
7. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi - afleysing
Lögð fram drög að auglýsingu vegna tímabundinnar ráðningar í starf upplýsinga- og markaðafulltrúa vegna fæðingarorlofs.
8. Skiltahandbók
Í undirbúningi er kortlagning og framleiðsla á sameiginlegri skiltahandbók fyrir sveitarfélög á Reykjanesi.
9. Klakstöð og eldisstöð fyrir matvælaframleiðslu
Bæjarráð fagnar hugmyndum félagsins að uppbyggingu starfseminnar í Grindavík.
10. Heimildarmynd um eldgosið í Gendingadölum
Lagt fram erindi frá Jóni Rúnari Hilmarssyni um samstarf um gerð á fyrirhugaðri heimildarmynd um gosið.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.11. Styrkbeiðni - Blái herinn
Blái herinn óskar eftir stuðningi bæjarins með því að vera í draumateymi samtakanna 2022.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.