Bæjarráð Grindavíkur - 1667. fundur
- 08.10.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1667
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Varðveisla minja og aðgengi ferðamanna - Rammaskipulag
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Skarphéðinn Berg Steinarsson. Frá Batteríinu: Davíð Ingi Bustion (Teams) og Sigurður Einarsson (Teams).
Lögð fram verkefnislýsing og áætlun um hönnun og ráðgjöf frá Batteríinu arkitektum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram með fyrirvara um fjármögnun verkefnisins.2. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Skarphéðinn Berg Steinarsson.
Lagður fram leigusamningur við Breiðablik vegna aðstöðu í Smáranum með gildistíma 1. okt. 2024 til 31. maí 2025.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.3. Málefni fatlaðs fólks - Samningar um þjónustuúrræði
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Skarphéðinn Berg Steinarsson.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs, dags. 1. október 2024.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að ræða við sveitarfélögin á Suðurnesjum um aðkomu Grindavíkurbæjar að þessum þjónustuúrræðum á árinu 2025.4. Hafnasambandsþing 2024
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri.
Hafnasamband Íslands boðar til 44. hafnasambandsþings sem haldið verður í Hofi á Akureyri, dagana 24. og 25. október 2024.
Grindavík á skv. reglum Hafnasambandsins 5 fulltrúa.
Bæjarráð samþykkir að fari 3 fulltrúar frá Grindavíkurbæ á hafnarsambandsþingið.5. Hafnasambandsþing 2026
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri.
Lögð fram fyrirspurn um hvort Grindavíkurbær haldi hafnasambandsþing haustið 2026 ásamt Suðurnesjabæ og Reykjaneshöfn.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið.6. Fjárhagsáætlun 2025-2028 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lagt fram umræðuskjal um tekjustofna Grindavíkurbæjar á árinu 2025.
Farið yfir samskipti við framkvæmdanefnd um fasteignagjöld á árinu 2025 og fleiri tekjuforsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.7. Tryggingar á vélum og verkfærum innan Grindavíkur
Lagður fram tölvupóstur frá Grindinni trésmiðju vegna tryggingamála, dags. 16.09.2024.
Bæjarráð lýsir undrun sinni yfir afstöðu tryggingafélaga sem lýst er í erindinu og telur þetta ástand óviðunandi við þá uppbyggingu sem þegar er hafin í Grindavík og takmarkar möguleika fyrirtækja til reksturs í bæjarfélaginu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við framkvæmdanefndina um tryggingamál í Grindavík.8. Leit á vettvangi vinnuslyss
Borist hefur erindi frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna vettvangs vinnuslyss við Vesturhóp 26.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við framkvæmdanefndina um framhald málsins.9. Aðstaða fyrir lögreglu í Grindavík
Borist hefur erindi frá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum vegna aðstöðu fyrir lögregluna næstu mánuði. Horft er til þess að fá húsnæði Bókasafns Grindavíkur til afnota.
Bæjarráð samþykkir erindið.