Bæjarráð Grindavíkur - 1568. fundur
- 05.01.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1568
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gallup - Þjónustukönnun 2020
Matthías Þorvaldsson frá Gallup sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Farið yfir niðurstöður þjónustukönnunar sem gerð var meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins.2. Kjarasamningar - Stytting vinnuviku
Deildarstjóri öldrunarþjónustu sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir vinnufyrirkomulag deildarstjóra öldrunarþjónustu til reynslu til þriggja mánaða.3. Ísland ljóstengt framkvæmd
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Samningur um uppgjör við Mílu vegna verkefnisins "Ísland ljóstengt" er lagður fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningnum við Mílu.4. Ljósleiðaravæðing í Grindavík 2021
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Áætlanir Mílu um ljósleiðaravæðingu í Grindavík á árinu 2021 lagðar fram til kynningar.5. Gatnalýsing Þjónustusamningur 2020
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Niðurstöður opins útboðs vegna viðhalds og ledvæðingar gatnalýsingar liggja fyrir. TG Raf ehf. voru lægstbjóðandi en tilboð þeirra var 34.859.188 kr. sem er 78,28% af kostnaðaráætlun.
Samningur við TG Raf lagður fram til kynningar.6. Hleðslustöðvar í Grindavík
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Þann 11. desember sl. samþykkti Orkusjóður að veita 10 Mkr. til uppbyggingar hleðslustöðva í Grindavík. Drög að samningi lögð fram.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.7. Styrkur til fráveituframkvæmda
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur undirritað reglugerð um styrki til fráveituframkvæmda. Ráðgert er að opnað verði fyrir umsóknir um styrki í byrjun janúar 2021. Hægt verður að sækja um styrki fyrir framkvæmdir sem fram fara á tímabilinu 2020-2030 og vekjum við sérstaklega athygli á því að í janúar 2021 skal sækja um styrki fyrir verkefni sem hófust eftir 1. janúar 2020.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.8. Gerðavellir 17 Húsasótt
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Lögð fram aðgerðar- og kostnaðaráætlun frá OMR verkfræðistofu ehf. vegna fasteignarinnar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.9. Borgarhraun 2 - Umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar í flokki II
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík. Sótt er um 16 gistirými en Slökkvilið gefur umsögn fyrir allt að 10 gesti í húsnæðinu vegna brunavarna.
Bæjarráð mælir með leyfisveitingu fyrir allt að 10 gesti.10. Almannavarnarnefnd Grindavíkur - 67
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.