Bæjarráð Grindavíkur - 1728. fundur
- 18.11.2026
- Fundargerð
- Kl. 09:30 - 12:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1728
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Guðbjörg Eyjólfsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Georg Markanbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem 9. og 10. mál:
2611022 Ráðning á sviðsstjóra hjá Grindavíkurbæ
2611010 Tilboð í þjónustusamning - Auðnast ehf.
Samþykkt samhljóða.
1. Vesturhóp - Niðurrif og sprunguviðgerð
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar.
Lögð fram til kynningar eftirfarandi skjöl:
1. Minnisblað frá eigna- og veitustjóra, dags. 3. nóvember 2026, ásamt erindi frá 20. ágúst 2025.
2. Erindi frá fjölskyldu Lúðvíks Péturssonar, dags. 4. nóvember 2026, ásamt fylgigögnum.
3. Minnispunktar frá fundi með fjölskyldu Lúðvíks Péturssonar sem haldinn var 10. nóvember 2026.
4. Drög að svarbréfi bæjarstjóra til fjölskyldu Lúðvíks Péturssonar.
Með vísun til fyrirliggjandi gagna samþykkir bæjarráð fyrirhugað verklag varðandi niðurrif fjögurra húsa við Vesturhóp. Bæjarráð samþykkir jafnframt, f.h. Grindavíkurbæjar, fyrirhugað verklag varðandi sprunguviðgerð í Stamphólsgjá og leggur áherslu á að sprunguviðgerð verði hagað á þann hátt að aðstæður geti skapast aftur til leitar til að endurheimta líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar á öruggan hátt. Fyrirhugað verklag hefur verið rætt á fundi með fjölskyldu Lúðvíks Péturssonar og einnig með lögreglustjóra og forsætisráðuneyti og voru aðilar sammála um hvernig staðið verði að framkvæmd og öryggi á vettvangi.
Bæjarráð leggur áherslu á að fjölskylda Lúðvíks Péturssonar verði reglulega upplýst um stöðu framkvæmda og að fulltrúum fjölskyldunnar verði gefinn kostur á að setja fram ábendingar þegar tilefni þykir til.2. Svæðisskipulag Suðurnesja - Tilnefning í starfshóp
Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja óskar eftir því að sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna tilnefni hver um sig einn fulltrúa í sameiginlegan starfshóp um kortlagningu mögulegra svæða fyrir móttöku og meðhöndlun mengaðs jarðvegs.
Jafnframt verði Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og Landhelgisgæslu Íslands, fyrir hönd utanríkisráðuneytisins, boðið að tilnefna einn fulltrúa hvor í starfshópinn.
Bæjarráð tilnefnir hafnarstjóra tímabundið í starfshópinn þar til ráðið hefur verið í stöðu sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.3. Sundlaugamenning - Samstarfsverkefni með Uniejów
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Uniejów, vinabær Grindavíkur, vinnur að verkefni í samstarfi við Grindavíkurbæ með það að markmiði að styðja við menningu og styrkja samfélagsleg tengsl. Verkefnið felur m.a. í sér gagnkvæmar heimsóknir, vinnustofur, sýningar og menningarviðburði.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna.4. Umsókn í Uppbyggingarsjóð Suðurnesja 2027
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja veitir Grindavíkurbæ styrk að upphæð kr. 1.000.000 á árinu 2027 til að koma til móts við kröfur í áhættumatinu og að miðla barnvænum skilaboðum um náttúruvá og viðbrögð við hættuástandi í formi sögu. Áætlaður heildarkostnaður eru um kr. 4.000.000.
Bæjarráð samþykkir að hefja verkefnið í janúar 2027.5. Umsókn um styrk vegna vinnustaðaklasa til Byggðastofnunar
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Grindavíkurbær hefur fengið styrk að upphæð kr. 4.000.000 vegna vinnustaðaklasa í Grindavík.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.6. Beiðni um viðauka - Bókasafn
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 1.200.000 vegna bókakaupa.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina og að fjármögnun verði með lækkun að aðkeyptri þjónustu hjá Grunnskólanum.7. Beiðni um styrk vegna skráningar og miðlunar sögu húsa í Grindavík
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Straumrót ehf sækir um styrk vegna Götusagna (gotusogur.is), opnu sagnasafni þar sem saga húsa og gatna er skráð.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu.8. Þjónustugjaldskrá á frístunda- og menningarsviði 2027
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram tillaga að þjónustugjaldskrá á frístunda- og menningarsviði fyrir árið 2027.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til bæjarstjórnar til samþykktar.9. Ráðning á sviðsstjóra hjá Grindavíkurbæ
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 600.000 kr. vegna ráðningar á sviðsstjóra hjá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina og að fjármögnun verði með lækkun á aðkeyptri þjónustu hjá Grunnskóla.10. Tilboð í þjónustusamning - Auðnast ehf.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Launafulltrúi (Í Teams).
Bæjarráð samþykkir að gera samning við Auðnast ehf. til eins árs.
Jafnframt felur bæjarráð sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að bæta 3.500.000 kr. inn í fjárhagsáætlun 2027.11. Fjárhags- og verkefnaáætlun 2027 fyrir stafrænt samstarf sveitarfélaga
Lögð fram verkáætlun og kostnaðaráætlun starfræns samstarfs sveitarfélaga fyrir árið 2027. Hlutur Grindavíkurbæjar er kr. 485.527.
12. Viðbygging við fjölbrautarskóla Suðurnesja
Lagður fram tölvupóstur frá bæjarstjóra Reykjanesbæjar og tillaga um kostnaðarskiptingu á 140 millj. króna miðað við íbúafjölda sveitarfélaganna úr fjárhagsáætlun SSS fyrir árið 2027.
Bæjarráð leggur til að þetta mál verði tekið upp á fundi samráðshóps Grindavíkurbæjar og ríkisins.13. Kalka - fjárhagsáætlun 2027
Fjárhagsáætlun Kölku fyrir árið 2027 er lögð fram.
Eins og fyrri ár þá greiðir Grindavíkurbær eingöngu fyrir útlagðan kostnað Kölku vegna sorpmála í Grindavík.14. Fjárhagsáætlun 2027-2030 - Grindavíkurbær og stofnanir
Áætlunin er lögð fram ásamt samantekt á breytingum rekstarlykla frá fyrri umræðu og frá tillögum til fjárhagsáætlunar 2027.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að færa inn þær breytingar sem samþykktar hafa verið.