Bæjarráð Grindavíkur - 1590. fundur
- 07.09.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1590
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem 10. mál: 2109024 - Aðalfundur Fisktækniskóla Íslands. Samþykkt samhljóða.
1. Gatnagerð í Hlíðarhverfi - 1. áfangi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Framvinduskýrsla verkeftirlits er lögð fram.2. Hópsskóli - framkvæmdir við 2. áfanga
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Framvinduskýrsla verkeftirlits nr. 5 lögð fram.3. Slökkvilið Grindavíkur - ráðning slökkviliðsstjóra
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tilboð í umsjón með ráðningu slökkviliðsstjóra.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Intellecta og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.4. Endurbætur á Kvíabryggju
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 12.230.000 kr. á fjárfestingaáætlun Grindavíkurhafnar á verkið Kvíabryggja, endurnýjun á dekki. Fjármögnunin verði með lækkun á liðnum Þekja á Suðurgarð um sömu upphæð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.5. Sveitarfélögin og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lokaniðurstaða Suðurnesjavettvangs lögð fram. Fyrir liggur að forgangsraða verkefnum.6. Alþingiskosningar 2021
Kjörskrárstofn vegna alþingiskosninga 25. september lagður fram.
Með vísan til 33. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar samþykkir bæjarráð að fela bæjarstjóra að semja kjörskrá fyrir alþingiskosningar þann 25. september næstkomandi. Jafnframt er bæjarstjóra veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna alþingiskosninga 25. september nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.7. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Grindavíkurbær og stofnanir
Útkomuspá skatttekna fyrir árið 2021 og áætlun fyrir árið 2022 er lögð fram.
8. Fundargerðir og gögn fjallskilanefndar
Fundargerð fjallskilanefndar, dags. 26. ágúst 2021, er lögð fram.
Réttað verður í Þórkötlustaðarétt sunnudaginn 19. september kl. 14:00.9. Kostnaður vegna aðkeyptrar lögfræðiþjónustu hjá Grindavíkurbæ
Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs er falið að taka saman kostnað vegna lögfræðiþjónustu Grindavíkurbæjar sl. 24 mánuði.
10. Aðalfundur Fisktækniskóla Íslands 2021
Fundurinn fer fram 15. september 2021 kl. 16:00.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri fari með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.
Bæjarráð tilnefnir í stjórn félagsins:
Hjálmar Hallgrímsson sem aðalmann og
Fannar Jónasson sem varamann.