Bæjarráð Grindavíkur - 1569. fundur
- 19.01.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1569
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem síðasta mál: Rekstrarleyfi veitingastaðar í flokki II - Kokksi ehf.
Samþykkt samhljóða.
1. Lagning á fjarskiptasæstreng í landi Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi frá Farice ehf. vegna lagningar á fjarskiptasæstreng í landi Grindavíkurbæjar, dags. 13. janúar 2021.2. Breyting á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar frá 2016
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Svarbréf vegna kröfu í kjölfar breytinga á deiliskipulagi við Norðurhóp lagt fram.
Bæjarráð staðfestir bréfið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.3. Smáhýsi vestan við Sjónarhól
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga að breytingu á lóðarmörkum milli Sjónarhóls og smáhýsa við Hópsveg 1.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.4. Gerðavellir 17 Húsasótt
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka að upphæð 14.580.000 kr. vegna Gerðavalla 17 í samræmi við aðgerðaráætlun sem samþykkt var í bæjarráði þann 5. janúar sl.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.5. Fasteignagjöld 2020, Frestun innheimtu lögaðila vegna Covid 19
Bæjarráð samþykkir að framlengja greiðslufrest vegna fasteignagjalda 2020 hjá þeim sem sóttu um frestinn til 1. mars 2021. Staðan verður endurmetin fyrir þann tíma.
6. Fjárvörslusamningar
Lagt fram yfirlit yfir ávöxtun fjármuna Grindavíkurbæjar í eignastýringu.
7. Kjarasamningar - Stytting vinnuviku
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram samkomulag um styttingu vinnuviku hjá Kvikunni.
Bæjarráð samþykkir framlagt samkomulag.8. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og vinna málið áfram.9. Lokaskýrsla vegna breytinga á búningsklefum knattspyrnudeildar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Framkvæmdaskýrsla vegna breytinga á búningsklefum meistaraflokks karla í knattspyrnu lögð fram.
Bæjarráð harmar það að styrkur sem veittur var til kaupa á líkamsræktartækjum hafi ekki verið notaður til þess heldur nýttur í annað án samráðs við bæjaryfirvöld.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.10. Beiðni um styrk vegna breytinga á klefum mfl. kvenna í knattspyrnu
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Beiðni kvennaráðs Knattspyrnudeildar UMFG um styrk vegna breytinga á búningsklefum lögð fram.
Bæjarráð tekur vel í erindið en frestar afgreiðslu málsins þar til eftir vettvangsferð sem áætluð er 2. febrúar nk.11. Ósk um nafnabreytingu á keppnisvelli körfuknattleiksdeildar UMFG
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni frá aðalstjórn UMFG um heimild til að setja upp auglýsingaskilti á útvegg íþróttahúss.
Bæjarráð samþykkir erindið. Merkingarnar skulu vera settar upp í samráði við sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og forstöðumann íþróttamannvirkja.12. Rekstrarleyfi veitingarstaðar í flokki II - Kokksi ehf
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Sótt er um opnun til 23:00 virka daga og 01:00 aðfaranætur frídaga.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.