Bæjarráð Grindavíkur - 1668. fundur
- 22.10.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 17:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1668
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka mál á dagskrá með afbrigðum sem 4. mál:
2410025 - Merkingar innanbæjar í Grindavík.
Samþykkt samhljóða
1. Fyrirkomulag stuðnings við atvinnulíf í Grindavík
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi og hafnarstjóri. Frá framkvæmdanefnd: Árni Þór Sigurðsson, Viðar Helgason og Pétur M U Tómasson.
Lagt fram minnisblað frá GRN, dags. 17. október 2024 um mögulegar aðgerðir til stuðnings atvinnulífi í Grindavík og Grindavíkurbæ.
Bæjarráð leggur áherslu á að unnið verði markvisst að þeim tillögum sem fram koma í minnisblaðinu.2. Verkefni skólaþjónustu - flutningur verkefna til framkvæmdanefnda
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs. Frá framkvæmdanefnd: Árni Þór Sigurðsson, Viðar Helgason og Pétur M U Tómasson.
Lagt fram bréf til innviðaráðherra frá GRN dags. 14.10.2024 - Aðgerðaráætlun vegna flutnings verkefna frá Grindavíkurbæ til Grindavíkurnefndar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við hlutfallslega skiptingu kostnaðar við verkefni á sviði fræðslumála sem fram kemur í tillögu að framkvæmdaáætlun framkvæmdanefndar. Bæjarráð setur hins vegar almennan fyrirvara um að uppgjör verði á grundvelli raunkostnaðar og væntir þess að sá kostnaður verði a.m.k. ekki hærri en áætlun.3. Fjárhagsáætlun 2025-2028 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. Frá framkvæmdanefnd: Árni Þór Sigurðsson, Viðar Helgason og Pétur M U Tómasson.
Bæjarráð bendir á að töluverð óvissa er um lögbundna tekjustofna sveitarfélagsins á árinu 2025 og felur bæjarstjóra að eiga sem fyrst fund með hlutaðeigandi ráðuneytum um nauðsynlegar lagabreytingar.4. Merkingar innanbæjar í Grindavík
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar. Frá framkvæmdanefnd: Árni Þór Sigurðsson, Viðar Helgason og Pétur M U Tómasson.
Lagt fram minnisblað, frá Aton ehf. vegna merkinga innanbæjar í Grindavík.
Bæjarráð samþykkir að miðlungsleið verði til grundvallar en hún felur í sér hófstilltar merkingar innanbæjar.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með opnun Grindavíkurbæjar og þakkar framkvæmdanefndinni fyrir gott samstarf í þessu mikilvæga máli.5. Verkefni Innviðanefndar
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi.
Gert er ráð fyrir því að fastanefndir boði fulltrúa framkvæmdanefndar á fundi þegar við á, þar með talið fulltrúa þjónustuteymis.
Bæjarstjóra er falið að ræða nánara fyrirkomulag við framkvæmdanefnd.6. Stjórn Knattspyrnudeildar Grindavíkur óskar eftir stuðningi
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram beiðni um stuðning við knattspyrnudeild UMFG á árinu 2024.
Bæjarráð samþykkir að styrkja UMFG um 10.000.000 kr. og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að fylgja málinu eftir.7. Ósk um kaup á búnaði
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Bæjarráð felur sviðsstjórum að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.8. Staða óvarinna rafstrengja í og við Grindavík
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram erindi sem varða frágang rafstrengja og álit HMS um að fram þurfi að fara áhættumat til að greina hættu af háspennustrengjum.Guðjón Bragason vék af fundi kl. 16:30
9. Öryggisgæsla - Tollhús við Tryggvagötu
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að útfæra aðgangsmál í aðalandyri Tollhússins í samræmi við umræður á fundinum.
10. Kalka sorpeyðingarstöð - gámaplan og sorpílát á tímum náttúruhamfara
Lagt fram yfirlit yfir útlagðan kostnað Kölku vegna sorphirðu í Grindavík og reksturs gámaplans það sem af er ári 2024 ásamt áætluðum kostnaði við rekstur grenndargáma, ásamt tilboði frá björgunarsveitinni í flutning á sorptunnum frá Grindavík til Kölku.
Bæjarráð samþykkir tilboð björgunarsveitarinnar.