Bæjarráð Grindavíkur - 1517. fundur
- 04.06.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1517
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Marta Sigurðardóttirvaramaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Málefni leikskólabarna
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem 11. mál:

Frágangur við Hópið - sandfok af plani - 1812002

Samþykkt samhljóða.

Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fyrir liggja hugmyndir um að setja niður útistofu til að mæta þörf fyrir aukið leikskólarými.
Bæjarráð samþykkir að leita til ráðgjafafyrirtækis um að gera framkvæmda- og kostnaðaráætlun við að setja upp útistofu við leikskólann Krók.2. Grunnskólinn - kennararáðningar og greiðsla TV eininga
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skólastjóri óskar eftir heimild til að greiða TV einingar eins og verið hefur undanfarin ár til þeirra kennara sem lokið hafa B.Ed. prófi.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindi skólastjóra.3. Grunnskólinn - Tölvuumsjón og innleiðing breyttra kennsluhátta
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skólastjóri óskar eftir að ráða starfsmann í 50% starf til að vinna að tölvuumsjón og innleiðingu breyttra kennsluhátta með raftæki við Grunnskólann.
Bæjarráð telur eðlilegt að tölvuþjónusta vegna útstöðva hjá Grindavíkurbæ verði á einni hendi en ekki hjá einstökum deildum eða sviðum bæjarins. Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.4. Öldungaráð - Nýjar samþykktir
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillögur að nýjum samþykktum fyrir öldungaráð Grindavíkur lagðar fyrir fundinn.

Bæjarráð frestar málinu.5. Rekstraryfirlit janúar - mars 2019
Skýringar sviðsstjóra á frávikum frá fjárhagsáætlun 2019 fyrir tímabilið janúar - mars lagðar fram.
6. Ný persónuverndarlöggjöf 2018: Undirbúningur og innleiðing
Fyrir fundinum lágu innri persónuverndarstefna sem og persónuverndaryfirlýsing
Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir bæði skjölin.7. Umferðaröryggisáætlun: Aðkoma um Grindavíkurveg
Fyrir liggja uppdrættir vegna undirganga við Suðurhóp. Vegagerðin stefnir að útboði vegna verksins fyrir miðjan júní.
Lagt fram til kynningar.8. Reykjanesfólkvangur - Fundarseta
Bæjarráð samþykkir að greiða fulltrúa Grindavíkurbæjar í stjórn Reykjanesfólkvangs nefndalaun skv. reglum bæjarins fyrir hvern fund. Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 200.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
9. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti: Grænbók
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarstjórnir til að taka Grænbókina til umræðu.
Lagt fram til kynningar.10. Sveitarfélögin og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Boðað er til undirbúningsfundar þann 19. júní nk. fyrir ræsifund vegna stefnumótunar sem tekur mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Fundarboðendur óska eftir þátttöku nokkurra fulltrúa frá hverju sveitarfélagi á Suðurnesjum.
11. Frágangur við Hópið - sandfok af plani
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að útbúa útboðsgögn vegna frágangs og malbikunar á bílaplani við Hópið og leggi gögnin fyrir bæjarráð.