Bæjarráð Grindavíkur - 1678. fundur
- 11.03.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1678
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaraformaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskar formaður eftir heimild að setja eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem 4. mál:
2402011 UGLÝSING um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
1. Breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga
Lagt fram minnisblað, dags. 7. mars sl. ásamt drögum að umsögn um frumvarpið.
Bæjarstjóra er falið að ljúka gerð umsagnar um málið í samræmi við umræður á fundinum.2. Sértækur húsnæðisstuðningur
Að óbreyttu mun sértækur húsnæðisstuðningur ríkisins falla niður um næstu mánaðamót.
Bæjarráð lýsir áhyggjum af því að ekki er enn komin niðurstaða í málið.
Fyrir liggur að skammur tími er til stefnu að móta breytingar á úrræðinu og ljóst að margir lendi í fjárhagsvandræðum ef ekkert verður aðhafst.3. Umsjón með knattspyrnuvöllum sumarið 2025
Með vísan í ákvörðun bæjarstjórnar, á síðasta bæjarstjórnarfundi, er óskað eftir viðauka að upphæð kr. 5.000.000 sem fjármagnaður verði með lækkun á öðrum tilgreindum rekstareiningum á frístunda- og menningarsviði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.4. Sala á fasteigninni Vesturbraut 16 í Grindavíkurbæ
Með tölvupósti þann 06.03.2025 var Grindavíkurbæ tilkynnt um aðilaskipti á fasteigninni Vesturbraut 16, 240 Grindavíkurbæ. Fastanúmer: 2092473. Landeignarnúmer: 129069. Samkvæmt afsali sem lá frammi á fundinum er Ingólfur Einarsson seljandi eignarinnar og Fasteignafélagið Þórkatla kaupandi. Eignin er lögbýli og því þarf að tilkynna aðilaskipti að henni til sveitarstjórnar skv. 10. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
5. AUGLÝSING um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins.
Gildistími auglýsingar innviðaráðherra nr. 1278/2024 er til 15. mars. Í auglýsingunni er bæjarstjórn Grindavíkurbæjar heimilað að taka ákvarðanir sem fela í sér eftirfarandi frávik frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitar¬félagsins:
1. Að fundir bæjarstjórnar verði haldnir á öðrum stað en mælt er fyrir í samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins og að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og fastanefnda verði haldnir fyrir utan sveitarfélagið.
2. Að nefndarmenn taki þátt í fundum sveitarfélagsins með rafrænum hætti þrátt fyrir að vera ekki staddir í sveitarfélaginu eða í erindagjörðum innan lands á vegum þess.
Bæjarráð telur mikilvægt að þessar heimildir verði áfram í gildi þar til náttúruhamförum lýkur og felur bæjarstjóra að tryggja að svo verði gert. Meginregla verður þó áfram að fundir bæjarstjórnar og fastanefnda verði haldnir í Grindavík, eins og verið hefur undanfarna mánuði.6. Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.