Bæjarráð Grindavíkur - 1701. fundur
- 03.02.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1701
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Birgitta Hrund, Inga Fanney og Guðjón sátu fundinn í Teams.
1. Spurningar frá menntasviði og velferðarsviði Reykjanesbæjar
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram drög að svörum við spurningum frá mennta- og velferðarsviði Reykjanesbæjar.
Bæjarráð samþykkir framlögð svör og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að koma þeim á framfæri við Reykjanesbæ.2. Samstarfshópur vegna Reykjanesfólkvangs
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Náttúruverndarstofnun vinnur að undirbúningi að endurskoðun friðlýsingar fyrir Reykjanesfólkvang.
Við endurskoðun friðlýsingar fyrir fólkvanginn verður lagt upp með að stofna þrjá sjálfstæða samstarfshópa fyrir hvert svæði sem vinna að því að skipta upp fólkvanginum í samræmi við sveitarfélagsmörk og endurnýja friðlýsingarskilmála fyrir hvert svæði.
Náttúruverndarstofnun óskar eftir fulltrúa frá Grindavíkurbæ í samstarfshópa sem vinna að umgjörð friðlýsingarinnar með fulltrúum stofnunarinnar til dæmis að afmörkun og vinnslu friðlýsingarskilmála.
Bæjarráð tilnefnir Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs, í starfshópinn vegna lögsögu Grindavíkur.3. Upplýsingar um dvöl barna í Grindavík
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram svarbréf til Grindavikurnefndar vegna erindis sem lagt var fram á 1688. fundi bæjarráðs Grindavíkur.4. Endurkaupaáætlun Þórkötlu
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram bréf frá stjórn Járngerðar, dags. 30. janúar 2025, varðandi endurkaupaáætlun Þórkötlu og endurreisn Grindavíkur.5. Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Lagt fram bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dags. 27. janúar sl. vegna frumvarps um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.