Bæjarráð Grindavíkur - 1591. fundur
- 14.09.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1591
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Vefsíða Grindavíkurbæjar
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að þarfagreiningu fyrir nýjan vef Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð felur upplýsinga- og markaðsfulltrúa að gera verðkönnun við gerð á nýjum vef fyrir Grindavíkurbæ fyrir fjárhagsáætlun næsta árs.2. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2022
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samningum á frístunda- og menningarsviði lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.3. Leigusamningur vegna heilsuræktarstöðvar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðu málsins.4. Skipulags - og umhverfissvið: Verkefnastaða og starfsmannamál
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir verkefnastöðu sviðsins, framtíðarsýn í starfsmannamálum.5. Brunamál og almannavarnir- beiðni um viðauka
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2021 á málaflokk 07 Brunamál og almannavarnir, að fjárhæð 25.255.000 kr. skv. framlagðri sundurliðun. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.6. Tæknideild - beiðni um viðauka
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2021 á rekstrarliði 09521 Tæknideild, að fjárhæð 2.929.000 kr. skv. framlagðri sundurliðun. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á á liðnum 13031-2990, Átaksverkefni, önnur vörurkaup.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.7. Eignfærð fjárfesting á árinu 2021 - beiðni um viðauka
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir viðauka á fjárfestingaáætlun ársins 2021 að fjárhæð 120.000 kr. sem skiptist svo:
Viðbygging Hópsskóla kr. 100 milljónir og hönnun félagsaðstöðu eldri borgara kr. 20 milljónir.
Lagt er til að fjármögnun þessa viðauka verði með lækkun á verkinu Gatnagerð í Hliðarhverfi um 70 milljónir kr. og Vatnsveitustofn frá Svartsendi um 50 milljónir kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.8. Bílastæði - Ósk um stækkun stæða til móts við Hafnargötu 4-6
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Einn af lóðarhöfum við Hafnargötu 2,4 og 6 óskar eftir að fá að stækka bílastæði handan við Hafnargötu 2-4-6. Heimild fyrir þeim stæðum sem þegar eru þarna var veitt af skipulagsnefnd árið 2017.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.9. Slökkvilið Grindavíkur - ráðning slökkviliðsstjóra
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Auglýsing á starfi slökkviliðsstjóra lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.10. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Grindavíkurbær og stofnanir
Áætlun skatttekna fyrir árið 2022 lögð fram sem og fyrstu drög að launaáætlun 2022.
Vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 leggur bæjarráð fyrir sviðsstjóra og forstöðumenn að vöru- og þjónustukaup verði ekki meiri 2022 heldur en áætlun 2021 segir til um. Jafnframt er þess óskað að rýnt verði í hvern lið með það í huga að lækka kostnað.