Bæjarráð Grindavíkur - 1543. fundur
- 24.03.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1543
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Ársuppgjör 2019 - Grindavíkurbær og stofnanir
Drög að rekstraryfirliti málaflokka ársins 2019 lagt fram.
2. Kórónuveiran COVID-19
Fundarbókanir neyðarstjórnar lagðar fram.
3. Aðgerðir til að mæta fjárhagslegum áhrifum af kórónuveirunni
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi meðan á þessu ástandi vegna Covid-19 þó ekki lengra en til maíloka:
Bæjarráð samþykkir að einungis sé greitt fyrir nýtta daga í leikskóla og skólaseli og leiðrétting verður gerð á næsta reikningi.
Bæjarráð samþykkir að greiðslur bæjarins til dagmæðra verða óskertar þrátt fyrir að dregið sé úr vistun barna. Jafnframt samþykkir bæjarráð að fella niður leigu hjá þeim dagmæðrum sem eru með starfsemi sína í húsnæði bæjarins.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að útfæra það að öll börn í grunnskóla fái mat þá daga sem þau sækja skólann í apríl.
Bæjarráð samþykkir að veita lögaðilum, sem þess óska og eiga í rekstrarerfiðleikum vegna tekjuskerðingar, frest á greiðslu fasteignagjalda án kostnaðar.
Um er að ræða gjalddaga mars og apríl 2020 og mögulegur gjaldfrestur er út maí 2020.4. Tillögur að aðgerðaráætlun fyrir Suðurnes
Lagðar fram tillögur að aðgerðaráætlun sem S.S.S. tók saman til að leggja fyrir ríkisstjórnina.
5. Jarðskjálftar og landris við Grindavík
Skýrsla um Eldgos og hraunflóðavá við Grindavík eftir Pál Imsland og Bjarna Richter lögð fram.
7. Skýrsla landvarðar Reykjanesfólkvangs vegna 2019
Skýrsla landvarðar Reykjanesfólkvangs lögð fram til kynningar.