Bæjarráð Grindavíkur - 1557. fundur
- 15.09.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1557
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Kjarasamningar - Stytting vinnuviku
Launafulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar fram leiðbeiningar, dags. 24. ágúst 2020, um styttingu dagvinnutíma.
Bæjarráð felur forstöðumönnum að útfæra styttinguna á sinni stofnun.2. Kjarasamningur Starfsmannafélags Suðurnesja, ný grein 10.2.5
Launafulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fundargerð samráðsnefndar bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB og Sís þann 19. ágúst 2020 er lögð fram.3. Austurvegur 1 Umsókn um byggingarleyfi
Verklokaskýrsla fyrir nýja íþróttahúsið lögð fram.
4. Fjárhagsáætlun 2021-2024 - Grindavíkurbær og stofnanir
Áætlun skatttekna 2021 lögð fram sem og fyrstu drög að launaáætlun 2021.
Fyrir liggur að skatttekjur Grindavíkurbæjar muni verða minni 2021 heldur en í ár.
Bæjarráð leggur því fyrir sviðsstjóra og forstöðumenn að vöru- og þjónustukaup verði ekki meiri 2021 heldur en áætlun 2020 segir til um. Jafnframt er þess óskað að rýnt verði í hvern lið með það í huga að lækka kostnað.5. Golfklúbbur Grindavíkur
Lögð fram greinargerð um bætta aðstöðu við Húsatóftarvöll.
Bæjarráð skipar Sigurð Óla, Hallfríði og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs í viðræðunefnd við golfklúbbinn um framtíðar aðstöðu.6. Jafnvægisvogin
Bæjarráð þakkar gott boð en Grindavíkurbær hefur lagt upp með að jafna hlut kynjanna í ráðningum starfsmanna.
7. Lóðir og lendur til sölu
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.