Bæjarráð Grindavíkur - 1601. fundur
- 11.01.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 16:55
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1601
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fjárfesting 2022 - Stúka og tafla í nýjan íþróttasal
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fjárfestingaráætlun ársins 2022 er gert ráð fyrir stúku og skjám í nýjan íþróttasal. Undirbúningur þessara verkefna er i gangi.
Lögð fram hugmynd, ásamt kostnaðaráætlun, um að koma fyrir veggsvölum fyrir ofan stúkuna ásamt fjölmiðlastúku ofan við ritaraborð.
Bæjarráð samþykkir framlagðar hugmyndir.2. Samstarf um undirbúning vegna breytinga á úrgangsmeðhöndlun
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá SSS, dags. 17.12.2021 varðandi starfshóp á vegum Kölku í þeim tilgangi að greina þær breytingar sem kunna að verða á nærsamfélaginu í kjölfar laga sem tóku gildi 1. janúar sl. Þess er óskað að Grindavíkurbær skipi fulltrúa í starfshópinn.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skipa í starfshópinn.3. Björgunarmiðstöð í Grindavík - hugmyndavinna
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagður fram tölvupóstur frá björgunarsveitinni Þorbirni varðandi hugmyndir um sameiginlega björgunarmiðstöð í Grindavík.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndina og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.4. Fisktækniskóli Íslands - fjárframlög frá ríkinu
Skólinn hefur fengið aukið fjárframlag til reksturs á fjárlögum 2022.
Bæjarráð fagnar því að skólinn sé kominn með betri rekstrargrundvöll með auknu fjárframlagi frá ríkinu.
Næstu skref eru að koma húsnæðismálum skólans í góðan farveg. Horft er til nýrrar viðbyggingar við Kvikuna að Hafnargötu 12a sem myndi tryggja skólanum húsnæði til framtíðar í Grindavík.5. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IIG - Ingibjörg Jakobsdóttir
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins með þeim fyrirvara sem Slökkvilið Grindavíkur setur um útistandandi úrbætur og fresti.