Bæjarráð Grindavíkur - 1682. fundur
- 13.05.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1682
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaraformaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskar formaður eftir heimild til að taka umsögn um frumvarp um jöfnunarsjóð inn á dagskrá með afbrigðum og það verði síðasta mál á dagskrá.
Samþykkt samhljóða.
1. Áform Þórkötlu um að heimila gistingu í Grindavík
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Lagt fram bréf frá Fasteignafélaginu Þórkötlu, dags. 5. maí 2025, vegna áforma um að heimila gistingu í eignum félagsins í Grindavík með gerð viðauka við hollvinasamning.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með að málið skuli vera komið í þennan farveg og styður heilshugar við áformin.2. Opnir kynningarfundir á vegum Grindavíkurnefndar og Grindavíkurbæjar
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Áform hafa verið uppi um að halda íbúaþing Grindvíkinga fyrir sumarleyfi. Því verkefni verður frestað til næsta hausts en hins vegar verður boðað til þriggja opinna kynningarfunda á næstu vikum.3. Barnaverndarþjónusta Samvinna
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Samningur (drög) um samvinnu um barnaverndarþjónustu lagðar fram til kynningar.
Bæjarráð samþykkir forsendur samningsins og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.4. Ársuppgjör 2024 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2024 er lagður fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi 18. gr. og 61. gr. laga nr. 138/2011.5. Forkaupsréttur vegna sölu á fiskiskipinu Hraunsvík GK-75, sknr. 1907
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Víkurhraun ehf., kt. 660176-0129 hefur fengið kauptilboð í skipið ásamt veiðarfærum sem eru um borð í því en án aflahlutdeilda, aflamarks og aflareynslu. Grindavíkurbæ er boðinn forkaupsréttur, sbr, 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti.6. Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 270. mál á 156. löggjafarþingi - Umsögn Grindavíkurbæjar
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Lögð fram umsögn um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skila inn umsögninni.