Bæjarráð Grindavíkur - 1717. fundur
- 11.08.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1717
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Guðbjörg Eyjólfsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Georg Markanbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskar formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem síðasta mál á dagskrá:
2608010 Rallýaksturskeppni 21. - 23. ágúst 2026
Samþykkt samhljóða.
Bæjarstjóri sat fundinn í gegnum Teams.
1. Áhættumat fyrir Grindavík
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Dóra Hjálmarsdóttir frá Verkís, eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Dóra kynnti stöðu og vinnulag við gerð nýs áhættumats fyrir Grindavík sem byggir á áhættumiðaðri ákvarðanatöku varðandi þau brýnu verkefni sem þarf að vinna svo hægt sé að hefja endurreisn.2. Húsnæðismál
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Farið yfir stöðu mála.
Málinu er vísað til næsta fundar bæjarráðs en þá mun Örn Viðar Skúlason, frá Fasteignafélaginu Þórkötlu, koma inn á fundinn.3. Staða við undirbúning skólahalds
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lagt fram bréf til Mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 10. ágúst 2026, varðandi eftirfylgni með upplýsingabeiðni um framkvæmd skólahalds í Grindavík.4. Sameiginlegt ráð
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lagt til foreldraráði leikskóla og skólaráði grunnskóla verði steypt í eitt sameiginlegt ráð undir heitinu Skólaráð.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.5. Samningur um skólamáltíðir
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lögð fram drög að samningi við Skólamat ehf.
Bæjarráð samþykkir samning við Skólamat ehf.6. Viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar 2026
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri.
Í tengslum við framlagt minnisblað um sameiginlega þátttöku Grindavíkurhafnar og fyrirtækja í Grindavík á Icefish Expo 2026 óskar hafnarstjóri eftir samþykki bæjarráðs á viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar fyrir árið 2026 að fjárhæð 7.500.000 kr. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðaukabeiðnina.7. Bifreið til fólksflutninga - beiðni um viðauka
Óskað er eftir viðauka á fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 5.600.000 kr. til að kaupa 8 manna bifreið til að nýta ef til rýmingar kemur.
Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðaukabeiðnina.8. Ósk um íbúafund
Lagt fram bréf frá stjórn Járgerðar, hagsmunasamtaka, þar sem óskað er eftir því að Grindavíkurbær boði til opins íbúafundar.
Bæjarráð tekur vel í erindið og óskar eftir því að fulltrúi frá stjórn Járngerðar komi á næsta fund bæjarráðs.9. Rallýaksturskeppni 21.-23. ágúst
Fyrirhugað er að halda Rally Reykjavík 2026 dagana 21. - 23. ágúst nk.
Á Reykjanesi verður Djúpavatnsleið ekinn 21. ágúst kl. 17:00-20:00 og 23. ágúst kl. 13:00 - 15:00.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við keppnina svo fremi að keppnishaldarar afli tilskilinna leyfa og skili veginum í sama ástandi og hann var fyrir keppni.