Bæjarráð Grindavíkur - 1708. fundur
- 14.04.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1708
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem síðasta mál:
2602070 Skólahald í Grindavík - Haust 2026.
Samþykkt samhljóða.
1. Björgunarsveitin Þorbjörn - styrkbeiðni
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri. Frá björgunarsveitinni Þorbirni: Otti Rafn Sigmarsson og Bogi Adólfsson.
Björgunarsveitin Þorbjörn óskar eftir styrk til endurnýjunar á bílkrana. Bæjarráð frestaði málinu á síðasta fundi.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 5.000.000 kr. og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að sömu fjárhæð sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.2. Barnaverndarþjónusta - Samningur við leiðandi sveitarfélag
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lokadrög að samningi við Reykjanesbæ sem leiðandi sveitarfélag lögð fyrir bæjarráð til kynningar.3. Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands 2026
Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands d. 28.03.2026 lögð fram til kynningar.
4. Fasteignagjöld 2026 - Staðarsund 6, 8 og 10, beiðni um niðurfellingu
Óskað var frekari gagna á síðasta bæjarráðsfundi.
Lögð fram viðbótargögn um tjónamat, annars vegar skýrslur matsmanna NTÍ og hins vegar greinargerð frá Tensio ehf. um ástandsmat húsanna Staðarsund 6-12. Gögn bera með sér að verulega ber á milli um umfang tjóns á húshlutum. Matsaðilum ber þó saman um að Staðarsund 6 er ekki mikið skemmt.
Bæjarráð telur rétt að fallast á erindi eigenda Staðarsunds 8 og Staðarsunds 10 um niðurfellingu fasteignagjalda á árinu 2026, á þeim grundvelli að verulegt tjón hefur orðið á húsunum. Húsin nýtast því ekki eigendum til atvinnustarfsemi án verulegra viðgerða.
Erindi eiganda Staðarsunds 6 um niðurfellingu fasteignagjalda á árinu 2026 er hafnað, á þeim grundvelli að húsnæðið er lítið skemmt og forsendur eru til þess að hefja aftur starfsemi í því.5. AUGLÝSING um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins.
Bæjarráð óskar eftir framlengingu í fjóra mánuði á ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins, sbr. auglýsingu nr. 1328/2025.
6. Grindavíkurnefnd - skýrsla um endurreisn Grindavíkur
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Árni Þór Sigurðsson og Skarphéðinn Berg Steinarsson frá Grindavíkurnefnd.
Endurreisn Grindavíkur Rammaáætlun, skýrsla Grindavíkurnefndar er lögð fram.7. Aðgerðir í atvinnumálum Grindavíkur
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Árni Þór Sigurðsson og Skarphéðinn Berg Steinarsson frá Grindavíkurnefnd.
Skýrsla um framkvæmd stuðnings við lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík lögð fram til kynningar.8. Skólahald í Grindavík - Haust 2026
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri
Rætt um skólahald næsta haust.