Bæjarráð Grindavíkur - 1597. fundur
- 09.11.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1597
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Framtíð sundlaugarsvæðis
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarstjórn að unnið verði að hönnun sundlaugamannvirkja samhliða deiliskipulagningu íþróttasvæðisins.
Bæjarráð vísar málinu í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2022.2. Kostnaður vegna aðkeyptrar lögfræðiþjónustu hjá Grindavíkurbæ
Yfirlit yfir kostnað Grindavíkurbæjar vegna þjónustu lögfræðinga árin 2018-2021 lagt fram.
3. Ályktun bæjarráðs Árborgar um leikskólamál
Lögð fram áskorun bæjarráðs Árborgar á stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að beita sér fyrir fullri viðurkenningu ríkisvaldsins á leikskólastiginu sem menntastofnun.
Bæjarráð tekur undir áskorun bæjarráðs Árborgar.4. Verkefni vegna innleiðingar hringrásarkerfis
Lögð fram hvatning Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga til sveitarstjórna að hefja nú þegar undirbúning fyrir gildistöku lagabreytinga um hringrásarhagkerfi sem taka gildi 1. janúar 2023.
5. Loftslagsvernd í verki
Lagt fram boð Landverndar á fjarnámskeið með gagnvirkri þátttöku í Vefskóla Landverndar.
6. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Grindavíkurbær og stofnanir
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Vinnuskjöl vegna fjárhagsáætlunar lögð fram til umræðu.