Bæjarráð Grindavíkur - 1635. fundur
- 14.02.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1635
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gallup - Þjónustukönnun 2022
Matthías Þorvaldsson frá Gallup kynnti í gegnum Teams niðurstöður þjónustukönnunar sem gerð var meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins.
2. Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Grindavíkur
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Grindavíkur lögð fram með áorðnum breytingum.
Bæjarráð vísar samþykktinni til bæjarstjórnar til samþykktar.3. Bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar 2023 - Breyting og nýr viðauki
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar lögð fram með áorðnum breytingum.
Bæjarráð vísar samþykktinni til bæjarstjórnar til samþykktar.4. Grunnskólinn við Ásabraut - breytingar á rýmum í kennslustofur
Á fundi bæjarráðs þann 7. febrúar sl. var sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að kostnaðarmeta verkefnið og óska viðauka.
Verkefnið kostar 3 milljónir króna og er óskað viðauka um þá upphæð vegna verkefnisins og að það verði fjármagnað með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.5. Sorphirða á Suðurnesjum í desember 2022 og janúar 2023
Lagt fram bréf til forstjóra og rekstrarstjóra Terra, dags. 3. feb. 2023.
6. Ágangur búfjár
Lagt fram minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 3. febrúar 2023. Markmið minnisblaðsins er að varpa ljósi á réttarstöðu sveitarfélaga þegar beiðnir um smölun berast sveitarfélögum vegna ágangs búfjár milli landareigna og jafnframt frá afrétti.
7. Fundargerðir Vinnuverndarnefnd 2023
Fundargerð vinnuverndarnefndar, nr. 41 dags. 1. febrúar 2023, er lögð fram til kynningar.