Bæjarráð Grindavíkur - 1683. fundur
- 03.06.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1683
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, skipulagsfulltrúi og yfirmaður þjónustumiðstöðvar (Teams).
Lagðar fram hugmyndir um leiguverð á þeim íbúðum sem er í eigu sveitarfélagsins komi til leigu á almennum leigumarkaði. Stefnt er að því að endanleg tillaga um leiguverð verði lögð fram á næsta fundi bæjarráðs og stefnt að því að íbúðirnar verði auglýstar til leigu í júní.2. Málefni tónlistarskólans
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, skólastjóri tónlistarskólans (Teams), skipulagsfulltrúi og yfirmaður þjónustumiðstöðvar (Teams).
Lagður fram búnaðarlisti yfir hljóðfæri og fl. Bæjarráð felur skólastjóra tónlistarskólans og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.3. Styrkbeiðni vegna kvikmyndatöku
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, skipulagsfulltrúi og yfirmaður þjónustumiðstöðvar (Teams).
Lögð fram styrkbeiðni frá Othar Raven pictures & TV vegna kvikmyndatöku á sjómannadeginum og gerð kvikmyndar um Grindavík. Bæjarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð kr. 500.000.4. Umsókn um framkvæmdaleyfi
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi og yfirmaður þjónustumiðstöðvar (Teams).
Lögð fram framkvæmdalýsing frá HS Veitum vegna beiðni um framkvæmdaleyfi vegna lagningar bráðabirgðarafstrengs til Grindavíkur frá Svartsengi.5. Fasteignamat í Grindavík 2026
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi og yfirmaður þjónustumiðstöðvar (Teams).
HMS hefur kynnt nýtt fasteignamat þar sem fram kemur að fasteignamat í Grindavík verði óbreytt árið 2026 þar sem ekki er virkur fasteignamarkaður á svæðinu.6. Aðgerðaáætlun 2 vegna sprunguverkefnis og afhendingaröryggis veitukerfa
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi og yfirmaður þjónustumiðstöðvar (Teams).
Lögð fram aðgerðaáætlun 2 og kostnaðargreining vegna sprunguverkefnis og afhendingaröryggis veitukerfa.7. Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - U.M.F.G.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, skipulagsfulltrúi og yfirmaður þjónustumiðstöðvar (Teams).
Körfuknattleiksdeild U.M.F.G. sótti um tækifærisleyfi vegna lokahófs deildarinnar þann 30. maí. Erindið barst of seint frá leyfisveitanda en er lagt fyrir bæjarráð til umfjöllunar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.