Bæjarráð Grindavíkur - 1500. fundur
- 20.11.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 20:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1500
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Marta Sigurðardóttirvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem fyrsta mál á dagskrá.
1811062 Úttekt á rekstri sjávarútvegs á Austurlandi, Grindavík og Vestmannaeyjum.
Samþykkt samhljóða
1. Úttekt á rekstri sjávarútvegs á Austurlandi, Grindavík og Vestmannaeyjum
Til fundarins voru mættir Heiðar Hrafn Eiríksson, Gunnar Tómasson og Pétur Pálsson.
Skýrsla Deloitte vegna úttektar á rekstri sjávarútvegs á Austurlandi, Gríndavík og Vestmannaeyjum lögð fram.2. Fundartímar nefnda og aðkoma sviðsstjóra
Sviðsstjórar Grindavíkurbæjar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málið rætt við sviðsstjóra.3. Fjárhagsáætlun - Málaflokkur 025
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málinu vísað í bæjarráð af hálfu félagsmálanefndar. Kallað eftir stefnumótun í þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að leita til utanaðkomandi sérfræðings til að meta þjónustuna og koma með tillögur.4. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi
Listi yfir 17 umsækjendur lagður fram.
5. Kerfisstjóri Grindavíkurbæjar - uppsögn á starfi
Guðmundur Hjálmarsson hefur sagt starfi sínu lausu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram.6. Knattspyrnudeild UMFG - beiðni um styrk til fasteignakaupa
Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir styrk til kaupa á húsnæði fyrir leikmenn.
Bæjarráð óskar eftir að formaður deildarinnar mæti á næsta fund bæjarráðs.7. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar 2019
Drög að þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til staðfestingar í bæjarstjórn.