Bæjarráð Grindavíkur - 1722. fundur
- 22.09.2026
- Fundargerð
- Kl. 12:00 - 14:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1722
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Guðbjörg Eyjólfsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Georg Markanbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskar forseti eftir heimild til að taka eftirfarandi 2 mál á dagskrá með afbrigðum sem 3. og 4. mál:
2607020 Áhættumat fyrir Grindavík
2609057 Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Samþykkt samhljóða.
Guðjón sat fundinn í Teams.
1. Áætlun um frístundastarf fyrir börn og ungmenni í Grindavík
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og launafulltrúi.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs, dags. 17.09.2026 varðandi áætlun um frístundastarf fyrir börn og ungmenni í Grindavík.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðssstjóra frístunda- og menningarsviðs að útfæra tillögurnar og leggja fyrir næsta bæjarstjórnarfund.2. Beiðni um viðauka - Markaðs- og kynningarmál
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og launafulltrúi.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna kynningar og markaðssetningar að fjárhæð 13.000.000 kr. á lykilinn 21581-4342.
Lagt er til að fjármögnun verði með styrk vegna kynningarmála að fjárhæð 7.000.000 kr. á lykilinn 21581-0990 og hækkun á áætlun staðgreiðslu um 8.000.000 kr. lykill 00010-0021.
Bæjaráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.3. Áhættumat fyrir Grindavík
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Dóra Hjálmarsdóttir frá Verkís.
Dóra fór yfir lokaniðurstöður þeirra vinnu sem unnin hefur verið síðustu mánuði.
Bæjarráð þakkar Dóru fyrir vel unnin störf í verkstjórn vinnuhópanna. Niðurstaða þeirrar vinnu er að Grindavík er öruggur staður til búsetu, skólahalds og vinnu að teknu tilliti til þeirra öryggisráðstafana og mótvægisaðgerða sem koma fram í áhættumatinu.
Bæjarráð bendir á að kynningafundur um áhættumatið verður í Gjánni kl. 20:00 í kvöld.4. Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður 7. október kl. 16:00 á Hilton Reykjavík.
Bæjarfulltrúar eru hvattir til að mæta. Skráning er til og með föstudeginum 2. október 2026.5. Stoðþjónusta - Beiðni um viðauka
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Óskað er eftir að bæjarráð samþykkir viðauka sem fari á eftirfarandi liði í fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð kr. 1.365.000. Viðaukinn yrði færður undir 02522-1110 kr. 1.092.000 og 02522-1890 kr. 273.000.
Fjármögnun verði með hækkun á áætlun staðgreiðslu kr. 1.365.000 á lykil 00010-0021.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.6. Leikskólamál - Sveitarfélagið Vogar
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lagt fram erindi frá Sveitarfélaginu Vogum þar sem óskað er eftir mögulegu samstarfi vegna leikskólabarna á biðlista í Vogum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra, sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram.7. Sala útistofur við Ásabraut 2
Lagt fram tilboð að fjárhæð 15.000.000 kr.í aðra skólastofuna við Ásabraut.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.8. Verkefni færast frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til nýrrar ríkisstofnunar
Bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dagsett 16. september 2026 lagt fram. Í bréfinu koma fram tillögur og leiðir við fyrirkomulag eftirstandandi verkefna sveitarfélaganna eftir að breytingar verða á lögum um eftirlit, sem taka gildi 1. janúar 2027.
9. Samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Grindavíkurbæ
Lögð fram samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktin gildi frá og með 1. janúar 2027.