Bæjarráð Grindavíkur - 1615. fundur
- 05.07.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:25 - 17:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1615
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Leigusamningur vegna heilsuræktarstöðvar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Leigusamningur við Gym heilsu rennur út í september en endurnýjast til fjögurra ára ef honum er ekki sagt upp.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og forstöðumanni íþróttamannvirkja að vinna málið áfram.2. Ósk um endurbætur á klefum og styktaraðstöðu í íþróttamannvirkjum
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Aðalstjórn UMFG óskar eftir styrk til að ráðst í endurbætur á klefum og setja upp lyftingaraðstöðu.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur umsjónarmanni fasteigna og forstöðumanni íþróttamannvirkja að skila tillögum inn í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2023.3. Umsókn um styrk vegna Sjómannaballsins 2022
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
UMFG óskar eftir styrk á móti útgjöldum sem til féllu vegna Sjómannaballsins 2022.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.4. Golfvöllur á Hópstúni
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi frá Pálma Hafþóri Ingólfssyni varðandi framtíð golfaðstöðu á Hópstúninu.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því inn í vinnu við skipulag íþróttasvæðisins í heild en felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að kanna hvað hægt sé að gera núna í sumar fyrir svæðið.5. Stefnumótandi áætlanir ríkisins á sviði sveitarfélaga, skipulags- og húsnæðismála
Innviðaráðuneytið óskar eftir innleggi vegna málsins frá sveitarstjórnum. Frestur til að skila gögnum er til 31. júlí nk.
Bæjarráð felur sviðsstjórum bæjarins að svara erindinu.6. Stytting vinnuviku hjá Slökkviliði Grindavíkur
Lagðar fram tillögur að breyttu vinnufyrirkomulagi hjá slökkviliði Grindavíkur.
Bæjarráð samþykkir vinnufyrirkomulagið og felur slökkviliðsstjóra að leggja fyrir viðauka fyrir bæjarráð á árið 2022 vegna málsins.7. Tölvubúnaður 2018, stefna frá Endor
Lögð fram dómsniðurstaða vegna málsins.
Bæjarráð samþykkir að una dómsniðurstöðu.8. Endurskoðun á skipuriti Grindavíkurbæjar
Bæjarráð óskaði eftir því við KPMG að fá tilboð í aðstoð við að leggja mat á stöðu stjórnskipulags Grindavíkurbæjar og leggja fram tillögur til úrbóta þar sem það á við.
Markmið verkefnisins er að sveitarfélagið sé vel í stakk búið til að veita framúrskarandi þjónustu og takast á við frekari vöxt á komandi árum.
Lögð fram verkefnistillaga frá KPMG ásamt áætluðum kostnaði.
Bæjarráð samþykkir verkefnistillöguna og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram með KPMG.