Bæjarráð Grindavíkur - 1579. fundur
- 20.04.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1579
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Nafn á nýju hrauni og gígum við Fagradalsfjall
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fundinn mættu eftirfarandi: Formaður landeigendafélaga Hrauns, Sigurður G. Gíslason (í gegnum Teams). Formaður landeigendafélags Ísólfsskála, Guðrún Björk Guðsteinsdóttir (í gegnum Teams) Gísli G. Sigurðsson. Valgerður Söring Valmundsdóttir mætti fyrir ábúendur á Hrauni.
Með vísan til laga um örnefni nr. 22/2015 óskar bæjarráð eftir umsögn Örnefnanefndar um eftirfarandi tillögur að heiti á nýtt hraun austan Fagradalsfjalls: Fagradalshraun eða Fagrahraun.2. Sumarstörf 2021
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að sækja um styrk vegna sumarstarfa námsmanna.3. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2021
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2021 að fjárhæð 8.700.000 kr. vegna vinnuskólans.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Starfsáætlun vinnuskólans skal taka mið að því fé sem ætlað er í vinnuskólann.4. Umsókn um skólavist
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindið er bókað í trúnaðarmálabók.5. Öryggisgæsla á viðeigandi stofnun
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindið er bókað í trúnaðarmálabók.6. Viðhald tengivega að bryggjum
Hafnarstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum Teams.
Hafnarsjóði er falið að sjá um viðhald á aðkomuvegum innan hafnarsvæðis skv. framlagðri teikningu.7. Ársuppgjör 2020 - Grindavíkurbær og stofnanir
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2020 er lagður fram.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn og vísar honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi 18. gr. og 61. gr. laga nr. 138/2011.8. Frístundamál - trúnaðarmál
Lagt fram.