Bæjarráð Grindavíkur - 1505. fundur
- 22.01.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1505
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Starfaflokkun hjá Grindavíkurbæ
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram gögn um fjölda starfsmanna og kostnaðaráhrif. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.2. Stofnun öldungaráðs: Erindi frá Félagi eldri borgara í Grindavík
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga að breytingum á samþykkt Grindavíkurbæjar um stjórn og fundarsköp. Felld inn ákvæði um öldungaráð.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.3. Fyrirspurn um geymsluhúsnæði
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minja- og sögufélag Grindavíkur óskar eftir varanlegu geymsluhúsnæði til að hýsa muni í eigu félagsins og Grindavíkurbæjar. Áætlað er að um 2.000 munir séu í geymslu á vegum félagsins og tæpur helmingur þeirra í eigu Grindavíkurbæjar. Frístunda- og menningarnefnd vísaði erindinu til bæjarráðs á 79. fundi sínum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að óska eftir frekari gögnum.4. Gönguleið um sjávartengdar minjar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Grindavíkurbæ var úthlutað styrk að upphæð kr. 3.000.000 úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja vegna verkefnisins Gönguleið um sjávartengdar minjar í Grindavík. Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 3.000.000 vegna verkefnisins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 3.000.000 kr. á rekstrareininguna 05421 Menningarminjar sem fjármagnaður verði með 3.000.000 kr. tekjum á sömu rekstrareiningu.5. Refa- og minkaveiðar í Grindavík
Lagðar fram tillögur að reglum um refa- og minkaveiðar í Grindavík.
Bæjarráð vísar reglunum til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjóra er falið að hafa samband við þá veiðimenn sem voru með leyfi bæjarins til veiðanna.6. Tækifærisleyfi - Knattspyrnudeild UMFG
Sótt er um leyfi til að halda þorrablót í íþróttahúsinu þann 26. janúar nk. Fyrir liggur samþykki Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja og Slökkviliðs Grindavíkur.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.