Bæjarráð Grindavíkur - 1549. fundur
- 02.06.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1549
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fráveita Grindavíkurbæjar - hönnun og staðarval
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið voru bæjarfulltrúar sem ekki sitja í bæjarráði, formaður skipulagsnefndar, hafnarstjóri, formaður hafnarstjórnar, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, byggingarfulltrúi/veitustjóri og umsjónarmaður fasteigna.
Auk þess tveir ráðgjafar frá verkfræðistofunni Eflu sem kynntu niðurstöður líkans til að staðsetja útrás fráveitukerfis Grindavíkurbæjar, utan hafnargarða.
Bæjarráð samþykkir að skoða nánar valkosti B og C sem báðir eru í vestari hluta Hópsness.2. Undirbúningur - Opið bókhald Grindavíkurbæjar
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hallgrímur Arnarson frá KPMG mætti á fundinn og kynnti lausn KPMG um bókhaldsupplýsingar á heimasíðu bæjarins.
Bæjarráð samþykkir að kaupa kerfið frá KPMG og gerir ráð fyrir innleiðingu í haust.3. HS Orka: Veðsetning samningsbundinna réttinda
Lögð fram tillaga að staðfestingu á aflýsingu kvaðar vegna ákvæða um hagnýtingarsamning um náttúruauðlindir.
Bæjarráð samþykkir yfirlýsinguna.4. Fagháskólanám í leikskólafræðum
Lögð fram viljayfirlýsing um fagháskólanám í leikskólafræðum í samvinnu Háskóla Íslands, Keilis og sveitarfélaganna á Suðurnesjum.
Yfirlýsingin hefur verið undirrituð með fyrirvara um staðfestingu sveitarfélaganna.
Bæjarráð staðfestir viljayfirlýsinguna.5. Fjármál sveitarfélaga vegna Covid 19 - Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga
Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 14. maí 2020, lagt fram.
6. Samanburður fasteignagjalda viðmiðunareignar í 26 þéttbýliskjörnum 2020
Lögð fram skýrsla Byggðastofnunar um samanburð á fasteignamati og fasteignagjöldum 2020 á 26 þéttbýlisstöðum á landinu. Fram kemur að Grindavík er að innheimta næstlægstu fasteignagjöldin af þessum 26 þéttbýlisstöðum sem fram koma í skýrslunni.
7. Tillaga til þingsályktunar um stöðu sveitarfélaganna á Suðurnesjum. 187. mál.
Haustið 2019 var skipaður starfshópur til að vinna tímasetta aðgerðaáætlun um hvernig efla megi þjónustu ríkisins við íbúa á Suðurnesjum og mæta mikilli fólksfjölgun á svæðinu. Skýrsla starfshópsins er lögð fram.
8. Húsaleigusamningur - Skólabraut
Skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur gerir tilkall til húsnæðisins við Skólabraut sem nú er í fórum Félags handverkafólks í Grindavík.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.9. Landskerfi bókasafna - Aðalfundur 2020
Lagt fram fundarboð aðalfundar Landskerfa bókasafna fimmtudaginn 11. júní 2020.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að Andrea Ævarsdóttir verði fulltrúi Grindavíkurbæjar á fundinum.10. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. vegna ársins 2019
Lagt fram fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður á Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 12. júní 2020 kl. 15:00.
Allir sveitarstjórnarmenn eiga rétt á að sækja aðalfundinn.11. Sandfok af plani við hópið-bótakrafa
Úrskurður úrskurðarnefndar í vátryggingamálum lagt fram.
12. Slys við Brimketil
Bæjarráð hafnar erindinu.
13. Suðurnesjarall 2020
Akstursíþróttafélag Suðurnesja óskar eftir heimild til þess að fram fari rall um Hópsnesið 6. júní.
Bæjarráð samþykkir erindið svo fremi sem skilað verið við veginn eins og komið var að honum.14. Beiðni um kaup á ljósritunarvél
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunar ársins 2021.
15. Víkurfréttir, stuðningur
Lagt fram erindi frá ritstjóra Víkurfrétta um stuðning við sjónvarpsþáttaframleiðslu.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 300.000 kr.