Bæjarráð Grindavíkur - 1643. fundur
- 16.05.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1643
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Málefni aðalfundar Kölku-sorpeyðingarstöðvar sf.
Steinþór Þórðarson framkvæmdastjóri Kölku mætti á fundinn og kynnti starfsemi Kölku og framtíðarplön í rekstrinum.
Einnig sat fundinn undir þessum dagskrárlið fulltrúi Grindavíkurbæjar í stjórn Kölku, Kristín Ragnheiður Eiríksdóttir.2. Vinnuaðstaða starfsfólks á bókasafni í Hópsskóla
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagkrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2023 til kaupa á skrifstofuhúsgögnum fyrir starfsmann bókasafns í Hópsskóla að fjárhæð 550.000 kr. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.3. Garðsláttur eldri borgara
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
Bæjarráð samþykkir að hafa fyrirkomulagið óbreytt nú í sumar en málið verði skoðað betur fyrir sumarið 2024.4. Betri vinnutími í leikskóla
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað og bókun fræðslunefndar á fundi 131 þann 4. maí sl.
Bæjarráð samþykkir framlagða tímasetta áætlun um að ná þeim markmiðum sem sett eru.5. Sumarlokun leikskóla Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað og bókun fræðslunefndar á fundi nr. 131 dags. 4. maí sl. Jafnframt er lagt fram bréf frá skólastjóra Lautar, dags. 5. maí sl.
Bæjarráð samþykkir að stytta sumarlokun í Laut í 4 vikur og það taki gildi sumarið 2024 og að það verið útfært í fjárhagsáætlunarvinnu í haust.6. Starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað og bókun fræðslunefndar á fundi nr. 131 dags. 4. maí sl.
Bæjarráð samþykkir tillögur og útfærslu sem er í minnisblaðinu en það felur í sér afslátt á vistunargjöldum ef börn eru ekki í leikskóla milli jóla og nýárs, í dymbilviku og auknu sumarleyfi. Sækja þarf um afslátt í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins innan þeirra tímamarka sem gefinn verður.7. Læsisstefna Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað og bókun fræðslunefndar á fundi 131 þann 4. maí sl.
Bæjarráð tekur undir með fræðslunefnd um mikilvægi læsisstefnu og lýsir jafnframt yfir áhuga sínum á verkefninu "Kveikjum neistann" og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að óska eftir kynningu á verkefninu.8. Rekstur Fab Lab á Suðurnesjum
Lagt fram minnisblað frá Menntaneti Suðurnesja, dags. 27. apríl sl. um stafræna smiðju þar sem gerð er grein fyrir markmiðum og fjármögnun verkefnisins.
Málinu frestað til næsta fundar.9. Endurskoðun á skipuriti Grindavíkurbæjar
Lögð fram drög að lokaskýrslu frá KPMG um úttekt á stjórnskipulagi Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð þakkar KPMG fyrir skýrsluna og mun bæjarráð ásamt bæjarstjóra og sviðsstjórum vinna málið áfram.