Bæjarráð Grindavíkur - 1604. fundur
- 15.02.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1604
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Bæjarmálasamþykkt Grindavíkur - tillaga að breytingu
Lögð fram drög að breytingum á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð vísar samþykktinni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.2. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar menningarstefnunni til bæjarstjórnar.3. Athugun á kostum þess að leggja gervigras á Grindavíkurvöll
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs, dags. 7.2.2022.4. Deiliskipulag íþróttasvæðis
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Frumdrög að deiliskipulagi á íþróttasvæði lögð fram til kynningar.5. Leiksvæði í Grindavík
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að framtíðarsýn fyrir leikvelli lögð fram til kynningar.6. Endurnýjun samnings við Pílufélag Grindavíkur 2022
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni Pílufélag Grindavíkur varðandi styrk vegna barna- og unglingastarfs.
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir frekari gögnum fyrir næsta fund bæjarráðs.7. Samþykkt fyrir frístunda- og menningarnefnd - Endurskoðun 2022
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir frístunda- og menningarnefnd lögð fram.8. Samþykkt fyrir ungmennaráð - Endurskoðun 2022
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir ungmennaráð lögð fram.9. Barnabókasafn
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Félag um barnabókasafn leitar til Grindavíkurbæjar til að hýsa Barnabókasafn, barnamenningarmiðstöð og fræðasetur um barnamenningu.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.10. Velferðarnet Suðurnesja
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Nýsköpunaráætlun um þróun velferðarþjónustu á Suðurnesjum lögð fram til kynningar.11. Ársuppgjör 2021 - Grindavíkurbær og stofnanir
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram yfirlit staðgreiðslu og útsvars vegna ársins 2021 og yfirlit yfir handbært fé 31.12.2021.