Bæjarráð Grindavíkur - 1521. fundur
- 16.07.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 16:55
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1521
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Vegagerðin - Undirgöng undir Víkurbraut
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Vegagerðin hefur ákveðið að ganga til samninga við Ellert Skúlason ehf.2. Víkurbraut 62 - Breytingar á bæjarskrifstofum áfangi 2.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Verkið er hafið og eru áætluð verklok 1. október 2019.3. Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62 Stækkun og breytingar frh
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað var eftir tilboðum í verkeftirlit með framkvæmdunum og bárust 2 tilboð.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Vörðu verkþjónustu.4. Málefni leikskólabarna
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fyrir liggur kostnaðaráætlun á útistofu við Heilsuleikskólann Krók. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að panta þær gámaeiningar sem þarf í stækkunina og hefja undirbúing framkvæmda.5. Neyðarhnappur á tjaldsvæði
Bæjarráð samþykkir að gengið verið til samninga við Securitas vegna öryggishnapps sem muni gilda til 30. september.
6. Ensk nöfn á íslenskum stöðum
Bréf frá Örnefnanefnd, dags. 26. júní 2019, lagt fram.
7. Reglur um viðauka við fjárhagsáætlun
Lagðar fram til samþykktar reglur um gerð viðauka hjá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð samþykkir reglurnar.8. Innri leiga Eignasjóðs - Viðauki við fjárhagsáætlun 2019
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2019 vegna endurreiknings á innri leigu eignasjóðs.
Um er að ræða hækkun gjalda aðalsjóðs um 4.161.662 kr. og þjónustumiðstöðvar um 5.735.682 kr. Fjármögnunin er með hækkun tekna eignasjóðs um 9.897.344 kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukann.9. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Fjárfestingar á árinu 2019
Tölvupóstur frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna eftirlits með framvindu fjárfestinga fjárfestinga hjá sveitarfélögum á árinu 2019 lagður fram.
10. Fjárhagsáætlun 2020 - Grindavíkurbær og stofnanir
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 1. júlí 2019 um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda ársins 2020 og fjárhagsáætlana til þriggja ára lagt fram.
11. Staðan í kjaramálum félagsmanna
Erindið lagt fram.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar áréttar að samningsumboðið hefur verið framselt til Sambands íslenskra sveitafélaga og er sveitarfélaginu óheimilt að hafa afskipti af deilunni á meðan samningsumboðið liggur hjá sambandinu.