Bæjarráð Grindavíkur - 1467. fundur
- 02.01.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1467
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðmundur L. Pálssonvaramaður
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Stofnun öldungaráðs: Erindi frá Félagi eldri borgara í Grindavík
Drög að samþykktum fyrir Öldungaráð Grindavíkurbæjar lögð fram til umræðu.
Bæjarráð vísar drögunum, með áorðnum breytingum, til starshópsins til frekari skoðunar.2. Vinnufatnaður: Greiðslur umfram kjarasamninga
Fundargerð Sambands ísl. sveitarfélag og Starfsmannafélags Suðurnesja lögð fram.
3. Sjóvá: Ágóðahlutdeild Grindavíkurbæjar vegna 2016
Ágóðahlutdeild vegna Grindavíkurbæjar er 353.004 kr. og Grindavíkurhafnar 321.286 kr.
4. Húsnæðisáætlanir: Undirbúningur og gerð
Lagðar fram bókanir frá fundum fræðslunefndar, félagsmálanefndar og skipulagsnefndar.
5. Landgræðsla ríkisins: Endurheimt og varðveisla votlendis
Lagt fram bréf frá landgræðslustjóra.
6. Samband ísl. sveitarfélaga: Frumvarp - kosningar til sveitarstjórna
Lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
7. Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga: Hvatning til aðgerða
Á stjórnarfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga var bent á nauðsyn þess að öll sveitarfélög setji sér formlega stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis, ofbeldis og kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni enda sé slík hegðun ólíðandi með öllu.
Grindavíkurbær er með stefnu og viðbragðsáætlun í ofangreindum atriðum, sbr. inngang í starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar: "Það er stefna Grindavíkurbæjar að starfsmenn vinni í anda samstarfs og sýni þannig samstarfsfólki sínu alltaf kurteisi og virðingu í samskiptum. Einelti og önnur sálfélagsleg áreitni, svo sem kynbundin og kynferðisleg áreitni, verður undir engum kringumstæðum umborin. Meðvirkni starfsmanna í slíkum tilvikum er jafnframt fordæmd".