Bæjarráð Grindavíkur - 1482. fundur
- 26.06.2018
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1482
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Daggæsla : Húsnæðismál
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byrjað er framkvæmdum innanhúss á Gerðavöllum 17 og gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tilbúið til notkunar um miðjan ágúst.2. Beiðni um undanþágu frá greiðslu íbúðarréttar í Víðihlíð
Bæjarráð samþykkir beiðnina. Leiga verður því 25% hærri en annars hefði verið.
3. Ný persónuverndarlöggjöf 2018: Undirbúningur og innleiðing
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að ganga til samninga við Dattacalabs með hliðsjón af framlögðum samningsdrögum með endurskoðun á ákvæði um fyrirvara í samningsdrögunum. Bæjarráð samþykkir jafnframt viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 3.000.000 kr. sem fjármagnað verði með lækkun á handbæru fé.
4. Sjóvá: Ágóðahlutdeild vegna 2017
Ágóðahlutdeild bæjarins og hafnarinnar vegna ársins 2017 er 632.825 kr.
5. Kvikan: Sýndarveruleikasafn tengt sjómennsku
Lögð fram beiðni frá Ómari Grétarssyni um að Grindavíkurbær komi að uppsetningu á sýndarveruleikasafni, tengt sjómennsku, í Kvikunni.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu þar sem nú er í vinnslu stefnumótun um ferðamál og framtíð Kvikunnar.6. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar: Ráðning
Lögð fram tilboð í aðstoð við ráðningu bæjarstjóra en um er að ræða tilboð frá 3 ráðningarstofum.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Hagvang.
Bæjarráð samþykkir jafnfram viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 850.000 kr. sem fjármagnaðar verði með lækkun á handbæru fé.
Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs er falið að vinna málið áfram.7. Kjörnir fulltrúar: Styrkir til tölvukaupa
Á fjárhagsáætlun 2018 eru 840 þús.kr. ætlaðar í styrki vegna tölvukaupa kjörinna fulltrúa.
Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að vinna málið áfram þannig að hver kjörinn fulltrúi fái að hámarki 76.000 kr. til tölvukaupa.8. Kosning í nefndir: Ákvæði jafnréttislaga
Lagt fram.