Bæjarráð Grindavíkur - 1405. fundur
- 22.03.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1405
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jóna Rut Jónsdóttirvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
1. Málefni fatlaðra: Þjónustusamningur AFA
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fylgdi málinu úr hlaði.
Beingreiðslusamningur um þjónustu lagður fram. Félagsmálanefnd leggur til að samningurinn verði samþykktur.
Bæjarráð samþykkir samninginn og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2016 sem felur í sér tilfærslu á fjármagni innan bókhaldslykla málaflokksins.2. Dagvistun aldraðra: Aðstaða
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Stefanía Sigríður Jónsdóttir fylgdu málinu úr hlaði.
Miðgarður óskar eftir því að ein stór íbúð á neðri hæð við Austurveg nr. 5 í Grindavík verði tekin undir starfsemi dagvistar aldraðra. Félagsmálanefnd styður tillöguna.
Bæjarráð styður að tillögunni verði komið til framkvæmda þegar íbúð losnar á jarðhæð Víðihlíðar.3. Fjölþætt heilsuefling: leið að farsælli öldrun
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Stefanía Sigríður Jónsdóttir fylgdu málinu úr hlaði.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að óska frekari upplýsinga.4. Forvarnarteymi: Forvarnarverkefni, DC námskeið
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fylgdi málinu úr hlaði.
Bæjarráði líst vel á hugmyndina, en vísar henni til frekari vinnslu í forvarnarteyminu.5. Knattspyrnudeild UMFG: Ársskýrsla og ársreikningur 2015
Ársskýrsla og ársreikningur Knattspyrnudeildar UMFG vegna ársins 2015
6. Styrkbeiðni: vegna Landsfundar Upplýsingar á Suðurnesjum 29. og 30. september 2016
Afgreiðslu frestað.