Bæjarráð Grindavíkur - 1332. fundur
- 22.10.2013
- Fundargerð
- Kl. 18:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1332
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Vilhjálmur Árnasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2014-2017
Tillaga að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Grindavíkur og stofnana hans fyrir árið 2014, ásamt 3 ára rammaáætlun lögð fram.
Tillögunni er vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann 29. október.2. Uppbygging ferðamannastaða á Reykjanesi.
Bréf frá stjórn Reykjanes Jarðvangs (GeoPark) dags. 15. október 2013 þar sem lagt er til að stofnaður verði sameiginlegur sjóður til uppbyggingar ferðamannastaða í Jarðvangnum.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar verkefninu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.3. 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Framhald frá fundi 1330. Tilnefningar sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs lagðar fram.
Fulltrúi frístunda- og menningarnefndar: Jóna Rut Jónsdóttir
Fulltrúi eldri borgara: Birna Bjarnadóttir
Fulltrúi ungmennaráðs: Margrét Rut Reynisdóttir
Fulltrúi atvinnulífs: Erla Ósk Wissler Pétursdóttir
Fulltrúi bæjarstjórnar: Kristín María Birgisdóttir
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs er starfsmaður nefndarinnar.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.4. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Fundargerðin er lögð fram.
5. Lóð undir gróðurhús
Lagt fram.