Bæjarráð Grindavíkur - 1629. fundur
- 22.11.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1629
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Öldungaráð Grindavíkurbæjar - Fundur með bæjarráði
Bæjarfulltrúarnir Birgitta Hrund, Birgitta Rán og Gunnar Már sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Stjórn öldungaráðs Grindavíkurbæjar mætti til fundar við bæjarráð og fóru þau yfir áherslumál sem hvíla á eldri borgurum.2. Nýr leikskóli í Hlíðarhverfi - undirbúningur og hönnun
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga að breytingum á hönnun nýs leikskóla lagðar fram til kynningar. Breytingin snýr fyrst og fremst að því að tæknirými fyrir loftræstingu ásamt geymslu er fært niður í kjallara ásamt breytingum á þakvirki.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með þessar breytingar.3. Fyrirspurn vegna svæðis við Hafnargötu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa eftir áhugasömum aðilum um uppbyggingu á reitnum á horni Mánagötu og Hafnargötu. Samkvæmt aðalskipulagi skal uppbyggingin vera verslunar-og/eða þjónustustarfsemi.4. Fundur Grindavíkurbæjar með Vegagerðinni 4. nóvember 2022
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fundargerð upplýsingafundar Grindavíkurbæjar með Vegagerðinni þann 4. nóvember 2022 lögð fram til kynningar.5. ADHD samtökin - styrkbeiðni
Lögð fram styrkbeiðni frá ADHD samtökunum.
Bæjarráð samþykkir 100.000 kr. styrk af styrktarlið bæjarráðs.6. Rekstraryfirlit janúar - september 2022
Rekstraryfirlit janúar til september 2022 er lagt fram.
7. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar fyrir árið 2023
Tillaga að þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til samþykktar í bæjarstjórn.8. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum - Tekjuviðmið 2023
Tillaga að tekjuviðmiðum vegna afsláttar á fasteignaskatti og fráveitugjaldi til elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2023 eru lögð fram.
Bæjarráð vísar tekjuviðmiðum til samþykktar í bæjarstjórn.9. Álagningareglur fasteignagjalda 2023
Tillaga að álagningarreglum fasteignagjalda fyrir árið 2023 eru lögð fram.
Bæjarráð vísar álagningarreglunum til samþykktar í bæjarstjórn.10. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Drög að fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2023-2026 er lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að vísa áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn með þeim breytingum sem samþykktar voru á fundinum.