Bæjarráð Grindavíkur - 1316. fundur
- 16.04.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:15 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1316
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Deiliskipulag miðbæjar - Ránargata og Hafnargata
Til fundarins var mættur sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs og kynnti hann málið.
Tilboð frá Alta lagt fram. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að leita fleiri tilboða.2. Tillögur um breytingar á fasteigninni Hafnargötu 12a
Til fundarins var mættur sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs og kynnti hann fyrirhugaðar breytingar á húsinu en stjórn Kvikunnar hefur óskað eftir heimild til að fara í breytingar á húsinu og leigja út aðra hæðina ásamt því að færa Jarðorkusýninguna á fyrstu hæð. Breytingarnar verða fjármagnaðar af rekstri Kvikunnar.
Bæjarráð veitir Kvikunni heimild til að fara í breytingar á húsnæðinu og leigja út aðra hæðina.3. Ársreikningur Reykjanesfólkvangs vegna ársins 2012
Ársreikningurinn er lagður fram.
4. Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs 13. febrúar 2013
Bæjarráð tekur undir með stjórn Reykjanesfólkvangs um að koma á fundi með bæjarstjórum aðildarsveitarfélaganna.
5. Bygging reiðhallar í Grindavík
Bæjarráð samþykkir að greiða 25 milljón króna lokagreiðslu af styrk Grindavíkurbæjar til Brimfaxa, vegna byggingar á reiðhöll, út nú í apríl og hefur þá 50 milljón króna styrkur til hestamannafélagsins verið að fullu greiddur.
6. Ósk um ársleyfi frá störfum í Grunnskóla Grindavíkur vegna náms
Bæjarráð samþykkir erindið.
7. Grænn apríl
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu.
8. Stefnumótun í þjónustu við eldri borgara
Ráðuneytið hefur samþykkt að hefja formlegar viðræður við Grindavíkurbæ um að Grindavíkurbær taki að sér rekstur langlegudeildar í Víðihlíð.
Bæjarráð samþykkir að fyrir hönd Grindavíkurbæjar verði Róbert Ragnarsson, Nökkvi Már Jónsson, Stefanía Sigríður Jónsdóttir og Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm.