Bæjarráð Grindavíkur - 1453. fundur
- 15.08.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1453
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Reykjaneshöfn: Framkvæmdaþörf í Helguvíkurhöfn - Samgönguáætlun 2018-2021
Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri Reykjaneshafna mætti á fundinn og kynnti framtíðaráform Helguvíkurhafnar.
2. Tölvupóstur: Ábendingar vegna umgengni ferðamanna
Umhverfis- og ferðamálanefnd óskar eftir fjárveitingu fyrir 5 skiltum sem sett verði upp í sumar á helstu álagspunktum.
Bæjarráð tekur undir með nefndinni og felur sviðsstjóra að setja niður skiltin ef framkvæmdin rúmast innan fjárheimilda ársins 2017.3. Grunnskóli Grindavíkur: Beiðni um viðauka 2017, námsgagnakaup
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2017 að fjárhæð 2.500.000 kr. til að kaupa námsgögn fyrir nemendur og að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
4. Refaveiðar: Þriggja ára áætlun 2017-2019
Lögð fram áætlun Umhverfisstofunar fyrir árin 2017-2019 ásamt beiðni um útfyllingu á áætluðum kostnaði Grindavíkurbæjar fyrir sömu ár.
Bæjarráð samþykkir að setja 500.000 kr. í fjárhagsáætlun næstu ára og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að upplýsa Umhverfisstofnun um þá áætlun.5. Húsatóftavöllur: Stuðningur við uppbyggingu golfvallar
Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Lagt fram bréf frá Golfklúbbi Grindavíkur þar sem bent er á misskilning varðandi það að framkvæmdastyrkur ársins 2015 hafi verið tekinn sem hluti af uppbyggingarsamningi Bláa Lónsins, Grindavíkurbæjar og Golfklúbbs Grindavíkur. Bæjarráð telur ábendinguna réttmæta og samþykkir að setja 3.000.000 kr. í fjárhagsáætlun 2018 sem síðustu greiðslu í uppbyggingarsamningi við Golfklúbbinn.6. Kalka - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja: Kynning á mögulegri sameiningu SS og Sorpu
Fundargerð 483. fundar, dags. 10. ágúst 2017, lögð fram.
7. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2017
Fundargerð 717. fundar, dags. 9. ágúst 2017, lögð fram.