Bæjarráð Grindavíkur - 1308. fundur
- 15.01.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1308
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Íþróttamannvirki áfangi 1.
Páll Jóhann Pálsson bæjarfulltrúi og fyrrverandi formaður nefndar um uppbyggingu íþróttamannvirkja sem skilaði af sér skýrslu í janúar 2012 situr fundinn, auk Kristins Reimarssonar sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.
Fulltrúum aðalstjórnar UMFG og deilda félagsins var boðið til fundarins til að fara yfir áform um uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Jónas Þórhallsson, Eiríkur Leifsson, Þórhallur Benónýsson og Rúnar Sigurjónsson fulltrúar knattspyrnudeildar UMFG komu á fundinn kl. 17 og lögðu fram bréf með sjónarmiðum deildarinnar.
Óli Björn Björgvinsson og Guðmundur Bragason fulltrúar körfuknattleiksdeildar UMFG komu á fundinn kl. 17.25 og kynntu sjónarmið deildarinnar. Jafnframt lögðu þeir fram bréf með niðurstöðum frá fundi fulltrúa úr fimleikadeild, júdódeild, taekwondodeild, knattspyrnudeild, körfuknattleiksdeild og sunddeild.
Valgerður Jennýjardóttir og Hjörtur Walthersson fulltrúar fimleikadeildar UMFG komu á fundinn kl. 17.55 og kynntu sjónarmið deildarinnar.
Bjarni Már Svavarsson og Magnús Már Jakobsson fulltrúar sunddeildar UMFG komu á fundinn kl. 18.10 og kynntu sjónarmið deildarinnar.
Bjarni Már Svavarsson formaður UMFG lýsti sjónarmiðum aðalstjórnar.
Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar stærstu deilda innan UMFG gera miklar athugasemdir við þá hönnun sem liggur frammi um uppbyggingu íþróttamannvirkja. Fulltrúi D-lista væntir þess að meirihlutinn fari vel yfir þær tillögur sem komu fram og taki tillit til þeirra eftir því sem þurfa þykir.
Fulltrúi B-lista óskar eftir fundarhléi.
Formaður veitir 5 mínútna fundarhlé.
Fulltrúar B-, G- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúar B-, G- og S-lista vilja þakka fulltrúum deilda er mættu á fundinn fyrir þær athugasemdir er þar komu fram og munu bæjarfulltrúar ásamt starfsfólki bæjarins fara yfir þær í framhaldinu.2. Kaup á búnaði í íþróttahús
Framhald frá síðasta fundi.
Bæjarstjóri og sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs gerðu grein fyrir viðræðum við fulltrúa knattspyrnudeildar, körfuknattleiksdeildar og Kvenfélags Grindavíkur um gólfefni og búnað fyrir veisluhald í íþróttahúsinu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda-og menningarsviðs að kaupa teppaflísar á gólf íþróttahússins.3. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Tillaga að ráðgjafasamning um hönnun lögð fram.
Bæjarstjóra falið að leggja fram tillögu að bygginganefnd fyrir verkefnið fyrir næsta fund bæjarráðs.
Bygginganefnd í samstarfi við kerfisstjóra er falið að leggja fram tillögu um uppbyggingu tölvukerfa í grunnskólanum við Ásabraut samhliða uppbyggingu nýs húsnæðis fyrir bókasafn og tónlistarskóla.4. Aðild Grindavíkurbæjar að Íslenska sjávarklasanum
Bæjarráð samþykkir að gerast aðili að Íslenska sjávarklasanum og felur bæjarstjóra að leggja tillögu að samning fyrir næsta fund.
5. Ársuppgjör Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2012
Vinna við ársuppgjör og endurskoðun Grindavíkurbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2012 er hafin.
Staðfesting á óhæði frá KPMG vegna endurskoðunar ársins 2012 lögð fram.6. Ávöxtun fjármuna 2012
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs fór yfir og lagði fram yfirlit yfir ávöxtun fjármuna bæjarins hjá Íslandsbanka, MP-banka og Landsbankanum.
7. Landamerki jarðanna Kalmanstjarnar og Merkiness í Reykjanesbæ og tengsl þeirra við merki Staðar í Grindavík
Reykjanesbær vinnur að því að fá niðurstöðu í landamerki Merkiness og Kalmanstjarnar í Reykjanesbæ. Jarðirnar eiga land að jörðinni Stað í Grindavík og er uppdrátturinn því kynntur Grindavíkurbæ, en ekki óskað eftir formlegri afstöðu til hans.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að mæta á fund sem fyrirhugað er að halda þann 31. janúar hjá sýslumanni og gæta hagsmuna Grindavíkurbæjar.8. Tjaldsvæði - útboðsgögn
Tilboð í rekstur tjaldsvæðis lagt fram.
Eitt tilboð barst að fjárhæð 631.000 kr á ári.
Bæjarráð hafnar tilboðinu.