Bæjarráð Grindavíkur - 1438. fundur
- 14.03.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1438
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Sviðsstjóra er falið að kanna möguleika á að koma upp aðstöðu þar sem tveir dagforeldrar starfa saman utan eigin heimilis.2. Grunnskóli: Starfslok skólastjóra
Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. ágúst 2017.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 1.000.000 kr. til að standa straum af auglýsinga- og ráðningarferli.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 1.000.000 sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.3. Tjaldsvæði: Smáhýsi
Drög að samningi við 240 ehf. vegna smáhýsa við tjaldsvæðið lögð fram.
Bæjarráð vísar samningsdrögunum til umhverfis- og ferðamálanefndar með þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum.4. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja 2017
Beiðni frá knattspyrnudeild UMFG um framlengingu samnings um umsjón mannvirkja lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að afla frekari gagna og rökstuðnings vegna hækkunarbeiðni samningsins.5. Styrkbeiðni: Bridsfélag Suðurnesja
Gunnlaugur Sævarsson fyrir hönd Bridsfélagsins Munins og Bridsfélags Suðurnesja óskar eftir styrk vegna kaupa á félagsheimili.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.