Bæjarráð Grindavíkur - 1339. fundur
- 14.01.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1339
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Lovísa H Larsenvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Systkinaafsláttur milli dagforeldraþjónustu, leikskóla og skólasels.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fóru yfir tillögu um afslátt á milli dagforeldraþjónustu, leikskóla og skólasels og fyrirkomulagi til að halda utanum afslættina.
Afsláttur vegna annars barns verður 35%.
Afsláttur vegna þriðja barns verður 70%.
Afsláttur vegna fjórða barns verður 100%.
Afsláttur er veittur af lægsta gjaldi.
Lagt er til að koma upp rafrænni skráningu umsókna í gegnum Íbúagátt í One kerfinu. Það býður auk þess upp á fleiri möguleika í rafrænni stjórnsýslu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 upp á 1.400.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Áætlað er að nýtt kerfi taki gildi 1. mars næstkomandi.2. Ársuppgjör 2013, Grindavíkurbær og stofnanir
Skýrsla KPMG vegna skoðunar á innra eftirliti og fjárhagskerfi 2013 lögð fram.
3. Endurvinnsla og umhverfisvitund í stofnunum Grindavíkurbæjar
Minnisblað bæjarstjóra um stöðu endurvinnslu og umhverfismála í stofnunum Grindavíkurbæjar lagt fram.
4. Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum
Minnisblað Íslandsbanka um stöðu kaupsamnings vegna kaupa Úrsus I slhf. á um þriðjungs hlut í HS Veitum hf. lagt fram.
5. Málefni bókasafns
Tillaga að nýju vaktafyrirkomulagi á sameiginlegu bókasafni lögð fram.
6. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Frestað.
7. Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs 16. desember 2013
Lagt fram.
8. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Fundargerðir verkfunda nr. 19-22 lagðar fram, ásamt fundargerð bygginganefndar nr. 6.
Bæjarráð bókar að í 6. fundargerð bygginganefndar komi fram að hönnuður hafi gefið þær skýringar að við vinnslu teikninga hafi verið teiknað ofnakerfi í stað gólfhita fyrir mistök og taki hann fulla ábyrgð á því.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um hvort hægt sé að gera breytingar til að koma fyrir gólfhita á bókasafninu.