Bæjarráð Grindavíkur - 1714. fundur
- 30.06.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1714
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Guðbjörg Eyjólfsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Verkefnahópur um uppbyggingu áfangastaða fyrir ferðamenn í Grindavík
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram minnisblað um starfsemi og verkefni verkefnahóps um uppbyggingu áfangastaða fyrir ferðamenn í Grindavík, dags. 26. júní 2026.
Bæjarráð þakkar fyrir gott minnisblað og samþykkir nýja skipan í verkefnahópinn í samræmi við framkomnar tillögur:
Ásrún Helga Kristindsóttir
Eggert Sólberg Jónsson
Sigurður Rúnar Karlsson
Sigurður Arnar Kristmundsson
Magnús Már Jakobsson2. Samningur vegna stuðnings við Golfklúbb Grindavíkur 2026
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Óskað er eftir viðauka vegna samnings við Golfklúbb Grindavíkur að upphæð kr. 1.000.000 á deild 06813-9922 sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir beiðnina.3. Fasteignagjöld 2026 - Víkurbraut 28. Beiðni um niðurfellingu
HBA ehf óskar eftir niðurfellingu á fasteignagjöldum af Víkurbraut 28.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.4. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 48. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Borist hefur tilnefning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum um fulltrúa lögreglunnar í almannavarnanefnd Grindavíkur.
Embættið tilnefnir Gunnar Schram yfirlögregluþjón sem aðalmann og Bjarneyju Annelsdóttur yfirlögregluþjón sem varamann.
Bæjarráð samþykkir tilnefninguna.5. Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Lagt fram minnisblað, dags. 18. júní 2026, um stöðu Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja í ljósi fyrirhugaðs afnáms heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.
Bæjarráð óskar eftir að fá kynningu á málinu frá HES inn á bæjarráðsfund.6. Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár
Lagt fram bréf, dags. 24. júní 2026, frá atvinnuvegaráðuneytinu til þeirra sveitarfélaga þar sem málefni búfjárbeitar og ágangur búfjár kunna að koma upp.
7. Styrkbeiðni vegna kynningar á heimildarmynd
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Garðar Örn Arnarson sækir um styrk vegna kynningar á heimildamyndinni Grindavík á Summer Leauge Film Festival í Las Vegas.
Bæjarráð samþykkir 350.000 kr. styrk til verkefnisins af styrktarlið bæjarráðs.