Bæjarráð Grindavíkur - 1471. fundur
- 13.02.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1471
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Efnistaka í Fiskidalsfjalli: beiðni um umsögn.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð telur að vel sé gerð grein fyrir framkvæmdinni í "Greinagerð með tilkynningu til ákvörðunar um matsskyldu" og að fyrirhuguð efnistaka í Fiskidalsfjalli þurfi ekki að fara í mat á umhverfisáhrifum. Umrædd framkvæmd er háð framkvæmdaleyfi hjá Grindavíkurbæ.2. Efnistaka í Húsafelli: umsögn um matsskyldu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð telur að vel sé gerð grein fyrir framkvæmdinni í "Greinagerð með tilkynningu til ákvörðunar um matsskyldu" og að fyrirhuguð efnistaka í Húsafelli þurfi ekki að fara í mat á umhverfisáhrifum. Umrædd framkvæmd er háð framkvæmdaleyfi hjá Grindavíkurbæ.3. Félagsleg heimaþjónusta: Gjaldskrá 2018
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að hækka gjaldskrána fyrir árið 2018 um 3% og mun þá tímagjald hækka úr 1.250 kr. í 1.288 kr. og vísar gjaldskránni til staðfestingar í bæjarstjórn.4. Málefni foreldra: Heimgreiðslur
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð hafnar erindinu að svo stöddu en mun taka þetta inn í heildarumræðu um dagvistunarmál. Nú er vinna í gangi að kanna húsnæðismál fyrir dagvistun og mun liggja fyrir niðurstaða í því á næstu mánuðum. Ljóst er að vandi vegna skorts á dagforeldrum er ekki eingöngu vandi sveitarfélaga heldur þarf ríkið að koma þar að málum, t.d. með því að lengja fæðingarorlof.5. Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga: Hvatning til aðgerða
Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að skilyrða fjárveitingar til íþróttafélaga og annarra félaga sem bjóða upp á tómstundaiðkun fyrir börn og unglinga, því að félögin setji sér siðareglur, viðbragðsáætlanir og fræði sitt fólk um ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi.
Bæjarráð tekur undir bókun frístunda- og menningarnefndar en hún er svohljóðandi:
Í þeirri vinnu sem framundan er við endurnýjun samnings Grindavíkurbæjar og UMFG og önnur íþróttafélög verður ákvæði um einelti og ofbeldi, kynbundna og kynferðislega áreitni sett í samningana.