Bæjarráð Grindavíkur - 1441. fundur
- 11.04.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1441
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Staðarvör 4: Ósk um lokaúttekt.
Eigendur Staðarvarar 4 höfðu óskað eftir að fá að koma á fund og samþykkti bæjarráð þá beiðni. Eigendurnir kynntu sín sjónarmið fyrir bæjarráði. Bæjarráð samþykkir að fresta málinu og bæjarstjóra falið að afla frekari gagna.
2. Kalka - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja: Kynning á mögulegri sameiningu SS og Sorpu
Á fundinn mætti Jón Norðfjörð framkvæmdastjóri Kölku sem og tveir starfsmenn frá Capacent og fór yfir gögn er varða mögulega sameiningu. Allir aðal- og varabæjarstjórnarfulltrúar höfðu fengið tölvupóst um þessa kynningu og áttu þess kost að mæta.
3. Beiðni um umsögn: Nýtingarleyfi í Svartsengi/Eldvörpum.
Á fundinn mættu Ólafur Árnason og Ingi Ingason frá verkfræðistofunni Eflu og kynntu stöðu málsins. Allir aðal- og varabæjarstjórnarfulltrúar höfðu fengið tölvupóst um þessa kynningu og áttu þess kost að mæta. Bæjarráð samþykkir að fela Ólafi og Inga að móta tillögur að svarbréfi til OS í samræmi við umræður á fundinum og verði bréfið lagt fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.
4. Melhólsnáma: Vinnsluáætlun
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið. Bæjarráð felur sviðsstjóra að vinna að auglýsingu um umsýslu á Melhólsnámu.
5. Umsókn um lóð: Víðigerði fjölbýli
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið. Gatnagerð er ekki hafin á svæðinu og lóðirnar því ekki lausar til úthlutunar sem stendur. Bæjarráð tekur jákvætt í erindi Austurbær-fasteignafélag og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
6. Kvikan: breytt nýting eða sala
Bæjarstjóri fór yfir málið og lögð voru fram drög að auglýsingu eftir rekstraraðilum í Kvikuna. Bæjarráð samþykkir að auglýsa á grundvelli draganna.
7. Samstarfssamnngur á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju 2017-2020
Fyrir fundinum lágu drög að samningi um æskulýðsstarf milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju. Bæjarráð samþykkir samninginn.
8. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja 2017
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Björg Erlingsdóttir, hélt fund með fulltrúum knattspyrnudeildar og ritaði minnisblað sem lá fyrir fundinum. Bæjarráð samþykkir að fresta málinu.
9. Markaðsátak á Reykjanesi: Ferðamannaleiðin Blue Diamond
Bæjarráð hafnar samningi um framleiðslu og verkstjórn á markaðsátaki við félagið GRP ehf.
10. Lionsklubbur Grindavíkur: Ósk um styrk
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að veita 1.000.000 kr. styrk til kaupa á hjálpartækjum til björgunarstarfa.
11. Tölvupóstur: Ábendingar vegna umgengni ferðamanna
Málið lagt fram til kynningar. Bæjarráð þakkar ábendinguna og vísar erindinu til umhverfis- og ferðamálanefndar.