Bæjarráð Grindavíkur - 1342. fundur
- 11.02.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:30 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1342
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
1. Búsetumál eldri borgara í Grindavík
Tilnefningar í nefnd um búsetumál lagðar fram.
f.h. félagsmálanefndar: Anna Sigríður Jónsdóttir
f.h. félags eldri borgara í Grindavík:
Sverrir Vilbergsson
f.h. Miðgarðs: Stefanía Sigríður Jónsdóttir
f.h. minnihluta bæjarstjórnar Hjálmar Hallgrímsson
f.h. meirihluta bæjarstjórnar Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm
Bæjarráð samþykkir tilnefningarnar og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að boða til fyrsta fundar.2. Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum
Bæjarstjóri gerði grein fyrir því að undirritun kaupsamnings hafi farið fram í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar þann 17. desember 2013 og leggur undirritaðan samning fram til kynningar.
Bæjarráð vísar kaupsamningnum til bæjarstjórnar.3. Athugasemdir Fetisov Gennadiy skipstjóra á MV Reggedijk
Hafnarstjórn skorar á bæjarráð að huga að áframhaldandi sjóvörnum í landi Grindavíkur.
Unnið er að sjóvörnum í landi Grindavíkur í samræmi við Aðalskipulag Grindavíkurbæjar og Samgönguáætlun ríkisins.
Bæjarráð óskar eftir tillögum hafnarstjórnar um ný verkefni sem eru ekki nú þegar á áætlun.4. Beiðni um endurnýjun á samningi vegna umsýslu á eignum Grindavíkurbæjar á íþróttasvæðinu. (Gula húsið, búningsklefar og salerni)
Framhald frá fundi 1337. Bréf frá Knattspyrnudeild 3. febrúar lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að halda áfram viðræðum í samræmi við umræður á fundinum.5. Beiðni um styrk til malbikunar og frágangs á bílastæði við Húsatóftavöll og klæðningar golfskála
Málið er tekið fyrir að nýju að beiðni GG þar sem styrkurinn var ekki sóttur á árinu 2013.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Grindavíkur 1.200.000 kr styrk til að klára klæðningu nýs golfskála félagsins og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014. Fjárhæðin kemur til lækkunar á handbæru fé.6. Bygging reiðhallar í Grindavík
Bókun frístunda- og menningarnefndar lögð fram ásamt svari formanns Brimfaxa.
7. Bæjarlistamaður Grindavíkur 2014
Tillaga frístunda- og menningarnefndar að reglum um tilnefningu bæjarlistamanns Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar tillögunni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarráð leggur til að styrkur til bæjarlistamanns verði 300.000 kr. og leggur til við bæjar að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 sem komi til lækkunar á handbæru.8. Fasteignagjöld 2014
Yfirlit yfir álagningu fasteignagjalda vegna ársins 2014 lagt fram ásamt samanburði við fjárhagsáætlun ársins. Álagningin er einni milljón krónum hærri en áætlun.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 til hækkunar á fasteignagjöldum um eina milljón króna sem kemur til hækkunar á handbæru fé.9. Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerð 18. fundar lögð fram.
10. Landamerki jarðanna Kalmanstjarnar og Merkiness í Reykjanesbæ og tengsl þeirra við merki Staðar í Grindavík
Minnisblað Lögmanna Suðurlandi um landamerki Staðar og Kalmanstjarnar lagt fram.
11. Lundur forvarnarfélag óskar eftir rekstrarstyrk á árinu 2014
Lundur forvarnarfélag óskar eftir rekstrarstyrk á árinu 2014.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð 50.000 kr. á árinu 2014 sem færist af lið bæjarráðs.12. Þorrablót UMFG í Íþróttahúsinu
Knattspyrnudeild og körfuknattleiksdeild UMFG óska eftir styrk móti útlögðum kostnaði við leigu á drapperingum á veggi, dansgólfi og leigu á húsnæði.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk á móti útlögðum kostnaði vegna leigu á drapperingum á veggi og dansgólfi samkvæmt framlögðum reikningum og að fella niður leigu á íþróttahúsinu.13. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Farið yfir tillögu að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.