Bæjarráð Grindavíkur - 1608. fundur
- 05.04.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1608
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gamla kirkjan í Grindavík
Kristín Matthíasdóttir og Kristinn S Jórmundsson, Vesturbraut 2, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og kynntu þau hugmyndir sínar um aukna starfsemi í gömlu kirkjunni með hugsanleg kaup í huga.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.2. Umsókn um byggingarleyfi - Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur)
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Kynntar fyrirhugaðar framkvæmdir við að klæða grunnskólann við Ásabraut.3. Ársuppgjör 2021 - Grindavíkurbær og stofnanir
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2020 er lagður fram.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn og vísar honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi 18. gr. og 61. gr. laga nr. 138/2011.4. Breyting á barnaverndarlögum - Barnaverndarþjónusta
Ákveðið hefur verið að fresta gildistöku ákvæða í barnaverndarlögum sem fjalla um barnaverndarþjónustu og umdæmisráð.
5. Viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 25. mars sl. varðandi viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka.
6. Forkaupsréttur vegna sölu á fiskiskipinu Hrafni GK-111, sknr. 1401
Þorbirni hf. hefur borist kauptilboð í skipið og er Grindavíkurbæ boðinn forkaupsréttur, sbr, 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.