Bæjarráð Grindavíkur - 1624. fundur
- 11.10.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1624
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Sverrir Auðunssonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Hafnargata 13 - Eigandi Rauði krossinn
Eignarhlutinn er sambyggður slökkvistöð Grindavíkur og er til sölu.
Lagt fram fasteignayfirlit eignarinnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.2. Tónlistarskólinn - 50 ára afmæli
Lagður fram tölvupóstur frá skólastjóra tónlistarskólans, dags. 10. okt. sl. varðandi 50 ára afmæli skólans.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka á árið 2022 að fjárhæð 400.000 á bókhaldslykilinn 04511-4920 til að standa straum af afmælishátíð tónlistarskólans. Bæjarráð leggur til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.3. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Káradóttir, Birgitta R. Friðfinnsdóttir og Gunnar M. Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Gestir fundarins voru: sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, skólastjóri grunnskólans og forstöðumaður Miðgarðs.
Farið yfir beiðnir um aukin stöðugildi fyrir árið 2023.