Bæjarráð Grindavíkur - 1459. fundur
- 10.10.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1459
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gatnagerð: Fiskasund
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Fjórir aðilar skiluðu inn forvalsgögnum og lagt er til að þeim verði boðin þátttaka í útboðinu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að bjóða verkið út.2. Gatnagerð: Víkurhóp
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Fjórir aðilar skiluðu inn forvalsgögnum og lagt er til að þeim verði boðin þátttaka í útboðinu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að bjóða verkið út.3. Beiðni um umsögn: Nýtingarleyfi á sjóblönduðu vatni í landi Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Orkustofnun óskar eftir umsögn um umsókn um nýtingarleyfi á sjóblönduðu vatni í landi Grindavíkurbæjar, vegna stækkunar fiskeldisstöðvar í Grindavík.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.4. Reglur um sí- og endurmenntun: Breyting á 16. tölulið
Tillaga um breytingar á hlutföllum í B- og C-lið 16. greinar. B-liður er nú 12% og lagt er til að hann verði 20%. C-liður er nú 18% og lagt er til að hann verði 10%.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.5. Bergbúar ehf: Umsókn um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II.
Fyrir liggja nýjar umsagnir frá HES, byggingarfulltrúanum í Grindavík og Slökkviliði Grindavíkur. Málið kemur fyrir að nýju eftir að hafa verið synjað á grundvelli fyrri umsagna.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.6. Refa- og minkaveiðar í Grindavík
Lögð fram beiðni 5 aðila um leyfi til að skjóta ref og mink í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að heimila þessum aðilum refa- og minkaeyðingu í sveitarfélaginu til 1. maí 2018.7. Alþjóðaþing Arctic Circle: Fundarboð
Fundarboð Alþjóðaþings Arctic Circle lagt fram.
Fulltrúum Grindavíkurbæjar er boðið til alþjóðaþings Hringborðs Norðurslóða, 13.-15. október í Hörpu.8. Skáknefnd UMFG: ósk um styrk 2017
Þjálfari Skáknefndar UMFG óskar eftir styrk vegna æfinga fram að áramótum.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð 238.000 kr. á árinu 2017 af styrktarlið bæjarráðs.