Bæjarráð Grindavíkur - 1372. fundur
- 10.02.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1372
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs kynnti tillögu frístunda- og menningarnefndar að stefnumótun um íþróttamál. Stýrihópur á vegum frístunda- og menningarnefndar hefur kynnt drög að stefnumótun í íþróttamálum fyrir aðalstjórnum UMFG, GG og Brimfaxa. Ein umsögn barst, frá knattspyrnudeild UMFG. Stýrihópurinn hefur uppfært stefnumótunina með tilliti til ábendinga knattspyrnudeildar auk þess að breyta uppsetningu. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt stefnumótunina og vísar til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar með áorðnum breytingum og felur sviðsstjóra að kynna tillöguna fyrir aðilum stefnumótunarinnar.2. Knattspyrnudeild UMFG: Framhald umsýslu vegna seinkunar á íþróttamannvirki
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 900.000 kr. til að geta framlengt verktökusamningi knattspyrnudeildar UMFG og Grindavíkurbæjar um umsýslu á Gula húsinu, búningsklefum, salernisaðstöðu við Hópið o.fl. þar til nýja íþróttamannvirkið verður tilbúið.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur og komi til lækkunar á handbæru fé.3. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2015-2018
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti tillögu frístunda- og menningarnefndar að samstarfssamningi milli Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG vegna áranna 2015-2018.
Bæjarráð felur frístunda- og menningarnefnd og sviðsstjóra að halda áfram viðræðum við aðalstjórn UMFG um samstarfssamninginn.4. Skógræktarfélag Íslands: Ósk um styrk í Yrkjusjóð
Skógræktarfélag Íslands óskar eftir styrk í Yrkjusjóð, en hlutverk sjóðsins er m.a. að úthluta trjáplöntum til grunnskóla fyrir nemendur að planta.
Bæjarráð samþykkir að styrkja sjóðinn um 40.000 kr. sem færist á lið bæjarráðs.5. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Framhald frá síðasta fundi.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúa og slökkvistjóra lagt fram.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.